Deila á Facebook
« Tekinn af löggunni - Ég er saklaus! | Aðalsíða | Rukkunin komin »

Væriru til í að hætta að leggja svona?
Skrifað miðvikud. 22. mars 2006 - 12:32
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég lenti í skondnu atviki í gær. Ég var í World Class og einmitt þegar ég er á hlaupabrettinu, kemur helmassaður gaur til mín og biður mig um að hætta að leggja svona eins og ég lagði. Ég lagði sko ská í tvö stæði, þar sem þetta var í raun bara eitt og hálft stæði, þannig hefði bíll reynt að troða sér í hálfa stæðið, hefði hann bókað hurðað bílinn minn, og það vildi ég ekki. Þannig ég lagði skrá í þetta eina og hálfa stæði. Ég sagði bara "ekkert mál" og brosti.

Í gær tók ég það bara rólega. Við pöntuðum pizzu og höfðum það bara kózý. Svo fór ég bara að sofa.

Svo núna í dag mætti ég í skólann. Ég er núna í hléi og á að mæta kl 13:20. Ég fór upp í Brimborg áðan og bað þá um að losa græjurnar í bílnum mínum, þar sem það þurfti eitthvað sérstakt tól, sem ég á ekki, til þess að taka þær úr. Núna eru þær farnar úr og núna get ég sett nýju græjurnar. Svo núna í kvöld ætla ég að dunda mér við að setja þær í bílinn. Ætla að tengja AUX snúru úr spilanum til þess að hafa lausa í bílnum, svo ég geti tengt iPodinn minn við græjurnar.

Nýju græjurnar - Sony Xplod





Athugasemdir ():