Deila á Facebook
« Væriru til í að hætta að leggja svona? | Aðalsíða | Drög að bréfi til lögreglustjórans í Rvk »

Rukkunin komin
Skrifað miðvikud. 22. mars 2006 - 23:39
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, það hlaut að koma að því. Tók styttri tíma en ég hafði áætlað.

Eins og flest ykkar vita, var ég tekinn af löggunni. Allavega, þá fékk ég sektina í dag. Ég fékk hana reyndar ekki senda í pósti, heldur bara sett inn sem "ógreiddur reikningur" á heimabankanum mínum.

Rukkunin fyrir of hraðan akstur



Ég bjóst nú við allavega 40.000 kr. en þarna er víst afslátturinn inni í þessu. Maður fær víst afslátt ef maður borgar sektina innan ákveðins tíma. Afslátt af hraðasekt! Haha! En án djóks, ég er að spá í að fara og ræða við þá niðri á stöð. Undir fjögur augu, eins og sagt er.

Allavega, í dag þá var bara chill. Ég fór bara heim og svo settist ég hjá besta vini mínum og fór að tala við hann. Svo þegar það var komið að kvöldmatnum, bað mamma mig um að fara á Nings og kaupa 4 stóra #65. Ég fór auðvitað og svo þegar kom að því að borða þá, þá borðaði ég 1 og hálfan, sem er mjög mikið! Svo fór ég bara aftur til besta vinar míns og spjallaði meira við hann. Svo áðan fór ég með Grétari út í BV og hann var að skila spólu og leigja aðra handa mömmu sinni.

Jæja, þá er bara að taka nokkrar aukavaktir í vinnunni svo ég eigi fyrir þessari helvítis djöfulsins andskotans sekt! Það er frekar erfitt að borga 30.000 kr. sekt í vinnu sem maður er að vinna í með skólanum. En mér tekst þetta...einhvernveginn...




Athugasemdir ():