Deila á Facebook
« Rukkunin komin | Aðalsíða | Föstudagurinn - Edrú? Ekki alveg! »

Drög að bréfi til lögreglustjórans í Rvk
Skrifað föstud. 24. mars 2006 - 16:57
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég gerði drög að bréfi, sem ég ætla mér að senda til lögreglustjórans í Reykjavík, þar sem ég mótmæli og harðneita því að hafa brotið svona harkalega af mér. Vissulega braut ég af mér, með því að vera á 80, en ég harðneita að hafa verið á 108!

Hér er bréfið í heild sinni. Ég á eftir að fínpússa það og fá undirskriftirnar hjá sjónarvottum.

Aðfaranótt þann 21. mars 2006 kl. 23:42 var ég, Guðjón Jónsson, tekinn fyrir of hraðan akstur á Gullinbrú í Grafarvogi. Með þessu bréfi mótmæli ég skriflega alvarleika þessa brots. Ég tel að ég hafi verið á 80-90 km/klst, í staðinn fyrir, eins og stendur í ákæru á hendur mér, 108 km/klst. Þegar þetta atvikaðist, bað ég lögregluþjónana um að skrifa niður í athugasemdir þennan vitnisburð og frásögn mína. Þeir gerðu það. Þeir báðu mig svo um að skrifa undir, til að staðfesta vitnisburð minn. Mér er sagt að ég hafi einungis verið að staðfesta brot mitt; þ.e.a.s. að ég hafi keyrt á 108 km/klst, sem ég vil harðneita fyrir.

Þetta sama kvöld var vinafólk mitt að keyra fyrir aftan mig. Eftir að ég var stöðvaður og var búinn að ræða við lögregluþjónana, stoppaði vinafólk mitt við hlið mér og staðfesti að ég hefði verið á 80-90 km/klst hraða, þar sem þau sjálf voru að keyra á 80 km/klst.

Með þessu bréfi vil ég að þið íhugið niðurfellingu eða lækkun rukkunarinnar, sem mér barst, úr 30.000 kr. niður í 15.000 kr., eins og rétt er, skv. alvarleika brots og reglugerd.is.
Einnig skal vera enduríhugað að færa 4 punkta inn í ökuferilskrá mína.

Ég keyri ávallt varlega og miðað við aðstæður. Ég hef ekki brotið af mér í heil 2 ár, en þau brot voru einungis vegna þess að maður var nýkominn með ökupróf, og maður var ungur og vitlaus. Maður hefur sem betur fer þroskast og er farinn að sýna skynsemi og varkárni í umferðinni.

Ásamt þessu bréfi læt ég fylgja með 3 fylgiskjöl með staðfestingu og undirskrift frá sjónarvottum um að ég hafi ekki verið á svo miklum hraða, eins og ég er ákærður fyrir.

Bifreið mín er af tegundinni Mercury Cougar, og er ég með einkanúmer á honum sem er WHYTRY. Fastanúmerið á bifreið minni er DY-487.




Athugasemdir ():