Deila á Facebook
« Drög að bréfi til lögreglustjórans í Rvk | Aðalsíða | Laugardagurinn - Dyraverðir eru stundum of svalir »

Föstudagurinn - Edrú? Ekki alveg!
Skrifað laugard. 25. mars 2006 - 17:00
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, þetta var ágætur föstudagur.

Ég byrjaði á því að fara í skólann á föstudeginum. Svo eftir skóla, fór ég upp í Bónus Video og horfði á Andra, félaga minn, vinna. Hann var að byrja þannig við vorum bara að kenna honum múvið. Svo fór ég bara í ríkið og keypti kippu af bjór. Fór svo bara heim, fór í sturtu og gerði mig kláran fyrir vinnuna.

Eftir vinnu, fór ég bara heim og ætlaði að taka rólegt kvöld. Ég ætlaði alls ekki að drekka! Svo komu Kamil og Danni yfir til mín. Ég fékk mér nokkra bjóra og við kíktum á rúntinn. Svo fórum við inn á skemmtistaði. Við byrjuðum á Gauknum. Það var ágætur stemmning þar. Hitti helling af fólki og það var mjög gaman. Hitti meðal annars Ingvar, Ívar, Gumma, Palla og Gulla. Gulli bauð mér upp á bjór. Takk fyrir það, kall. Seinna fór ég með strákunum á Glaumbar. Þar var drukkið meira og var maður þá orðinn ágætur. Svo fórum við bara á ýmsa staði, Hverfis ofl. Það var frekar ömurlegt, eins og alltaf, troðið og frekar niðurdrepandi stemmning.

Svo ákváðum við bara að fara heim. Kamil og Danni voru farnir, þannig maður þurfti einhvernveginn að redda sér heim. Við röltum á Hlölla og fengum okkur að borða. Áki var að vinna. Gaman að sjá þig. Svo tókum við leigubíl. Ég var ekki með pening á mér, þannig ég og Ívar gistum hjá vinkonu hans. Þegar við komum til hennar, þá var náskyldur frændi minn þarna, Ásgeir heitir hann. Ég hef ekki hitt hann síðan hann var pinkulítill snáði. Djöfull var skrítið að sjá hann eftir öll þessi ár. Svo fórum við bara að sofa.

Nú í morgun vöknuðum við Ívar alveg grútþunnir. Maður verður varla meira þunnur en þetta. Við hringdum í helling af fólki en enginn var nógu góður til þess að redda okkur heim. Svo prófuðum við að hringja í Oddrúnu, kærustu Ómars, og auðvitað kom hún. Takk, elskan. Svo fórum við í ríkið, þar sem Ívar þurfti meira áfengi fyrir kvöldið, þar sem hann er að fara að djamma aftur í kvöld á Stykkishólmi. Hittum þar Grétar og spjölluðum smá við hann. Svo fengum við okkur pylsu + gos á 150 kr. í Ikea. Djöfull var þetta ódýrt! Svo fengum við okkur annað gosglas og ís í eftirrétt. Svo fórum við bara heim.

Ég fór bara heim og horfði á myndina sem ég leigði í gær; Green Street Hooligans. Djöfull var hún góð! Ég mæli hiklaust með henni. Ég gef henni alveg 4 stjörnur af 5. Elijah Wood var að gera góða hluti sem aðalhlutverkið í henni.

Svo núna er ég að fara til Svavars og ætlum við í ríkið saman. Svo planið í kvöld er óákveðið. Eitthvað skemmtilegt verður gert, eins og alltaf.

Segjum þetta ágætt í bili. Ég tók því miður engar myndir um helgina, enda er pabbi með myndavélina fyrir vestan.




Athugasemdir ():