Laugardagurinn - Dyraverðir eru stundum of svalir
Skrifað sunnud. 26. mars 2006 - 17:24Jæja, auðvitað fór maður að djamma aftur á laugardeginum.
Ég ætla að gefa smá loforð hér og nú, og er það að ég ætla ekki að djamma bæði föstudag og laugardag. Ég er farinn að djamma allt of mikið og er þetta bara komið út í vitleysu, og er það nú meiri peningurinn sem fer í þessa vitleysu. Héðan í frá ætla ég bara að djamma annað hvort föstudag eða laugardag, ekki báða dagana! Fínt að taka það rólega á föstudögum og rúnta bara eða eitthvað, og taka svo smá á því á laugardögum. 
Klukkan 11 komu Arna og systir hennar, Elín, og komu að heilsa upp á mig. Arna var eitthvað veik, greyið. Vonandi batnar þér fljótlega.
Svo fóru þær bara og ég fór og tók mig til fyrir djammið.
Eftir að ég var búinn að sjæna mig, kom Helgi til mín. Pabbi hans skutlaði okkur svo niður í bæ. Við fórum í portið hjá Gauknum og þömbuðum bjórana sem við áttum eftir. Ég var enga stund að þamba mína en Helgi átti í einhverjum erfiðleikum, vegna flatleika og froðleika.
En það heppnaðist að lokum.
Svo fórum við bara inn á Gaukinn og hittum þar einhverja gaura sem voru með mér í Iðnskólanum, fengum okkur nokkra bjóra og fórum svo.
Næst kíktum við á Glaumbar og þar hittum við Elínu, systir Örnu. Ég og Helgi röltum nokkra hringi þarna í kringum staðinn og settumst svo á barinn. Barstúlkan heilsaði mér geðveikt vinalega eitthvað, eins og hún hefði þekkt mig. Kannski bara út af því að ég er fastagestur þarna.
Svo fórum við bara út, þar sem það var ekkert allt of mikil stemmning þarna.
Við röltum þá yfir á Rex. Á leiðinni hittum við hressar stelpur sem við byrjuðum að bulla í. Þær voru fæddar 86 en voru með skilríki upp á 85.
Svo hitti ég líka Maju frænku og spjölluðum við saman heillengi í bílnum hennar. En þegar við komum loks á Rex, ætlaði dyravörðurinn ekki að hleypa okkur inn. Við hringdum þá í Ingvar, sem er að vinna sem barþjónn á Rex, en hann hafði engin völd til að hleypa okkur inn, þannig við komumst ekkert inn. Dyravörðurinn sagði við okkur: "Þið hafið ekki aldur" og gaurinn var fæddur 86.
Helgi öskraði þá: "Þú ert fæddur 86 og þú segir að við höfum ekki aldur?!". Þá blikkaði dyravörðurinn bara Helga. Djöfulsins rugl. Það er gott að vera svalur. 
Við gáfumst bara upp og fórum á Pravda. Þar var dyravörðurinn líka efins um að hleypa okkur inn, en hann gerði það nú samt. Strax og við komum inn í anddyrið á Pravda, þar sem maður borgar inn, fór dyravörðurinn frá hurðinni inni, þannig við löbbuðum ótrauðir inn, án þess að borga krónu.
Við stoppuðum ekki lengi þar inni, en við sáum hinsvegar tröllvaxnasta dyravörð sem við höfum séð. Þessi gaur var risavaxinn, alveg 220 cm á hæð, með handleggi á stærð við þotuhreyfla. Ég og Helgi, sögðum við okkur sjálfa að ef við myndum lenda í böggi þarna, myndum við ekki abbast upp á þennan gaur. Við vorum skíthræddir við hann. 
Svo eftir þetta ömurlega pitstop á Pravda, fórum við á Sólon. Þar keyptum við okkur nokkra bjóra og sátum bara þarna rólegir að sötra bjórana okkar. Ég sá ekki Matta á Sólon. Ætli kallinn hafi ekki bara verið í fríi, þar sem hann vinnur allt of mikið.
En allavega, eftir bjórana fórum við bara.
Allt of mikið um rölt þessa helgi. Þetta er eiginlega alltaf svona. Maður kíkir inn á stað, en fer svo eftir 10-15 min. Það var ískalt úti í gær, og vorum við varla að meika þetta bæjarrölt. Enda frekar dauð stemmning í þessum blessaða bæ.
Næst fórum við á Hverfisbarinn. Helgi fór í VIP röðina og veifaði að Henning, yfirdyraverði. Þeir voru að vinna saman og voru ágætis kunningjar. Henning þóttist bara ekki þekkja hann, þannig við fórum bara aftast í röðina. Við erum að tala um að við biðum í hálftíma í þessari helvítis röð.
Auðvitað þurftu dyraverðirnir að hleypa 20 manns inn úr VIP röðinni. Ég hata VIP raðir, sérstaklega fólk sem er nobody. Þetta er bara hrein og bein mismunun.
En við hittum ágætt fólk í röðinni, þ.á.m. Kristínu, Kareni, Gumma, Pálmar (palmar.leti.is) ofl. Þau voru öll hress, eins og ávallt. Þegar við loksins komumst inn á Hverfis, eftir hálftíma bið í þessari helvítis röð, fórum við bara á dansgólfið. Þar hittum við Herdísi og Palla, vin Karenar. Einnig hitti ég Dóra og Sigga Svans. Þeir voru góðir, eins og alltaf.
Við fórum bara að dansa, fengum okkur meiri bjór og dönsuðum meira.
Svo þegar við vorum orðnir leiðir á þessu, ákváðum við bara að taka taxa heim. Ég var fyrstur í leiðinni, þannig ég borgaði 500 kr., en svo kvaddi ég fólkið og fór bara inn. Eftir þetta fór ég inn og fékk mér Frissa Fríska og sígó. Svo nokkrum tímum seinna, þegar ég var orðinn edrú, fór ég og sótti Guggu og Töru í partý til Davíðs, vinnufélaga Guggu. Svo skutlaði ég bara Töru heim og ég og Gugga fórum heim til mín.
Þetta var ágæt helgi, þrátt fyrir að laugardagskvöldið hafi ekki verið upp á marga fiska. En það bjargaðist gjörsamlega með æðislegri nótt með Guggu. Love you!

Athugasemdir (