Pest að ganga?
Skrifað miðvikud. 29. mars 2006 - 12:43Ég er alveg kominn með upp í kok af þessari pest sem er alltaf að ganga. Ég get svo með sanni sagt að ég sé því miður sýktur af henni.
Ég er ekki búinn að mæla hitann, en ég er með hálsbólgu, svima og vöðvabólgu. Glatað! 
Í gær var nú fátt gert. Eftir skóla fór ég upp í Nesradio og keypti eitthvað stykki til þess að tengja geislaspilarann, sem Kamil ætlar að selja mér, í bílinn. Þessi stykki kostuðu 2.291 kr. Svo fór ég upp á bónstöð, þar sem Kamil og Emmi voru. Ég bað Kamil um að tengja þetta fyrir mig, þar sem ég kunni það ekki, þannig Emmi og Kamil tengdu græjurnar fyrir mig. Svo fórum við upp á bensínstöð til að kaupa 10 ampa öryggi sem spilarinn þurfti. Svo fór ég bara heim.
Eftir að ég kom heim, fékk ég yndislega lambasteik í matinn, með tómatsósu og gulum baunum.
Svo fór ég bara til Rakelar og við horfðum á Fear Dot Com, sem er einhver hrollvekja um fólk sem fer inn á feardotcom.com og þá deyr það innan tveggja daga. Ég og Rakel vorum búin að plana að hafa svona video kvöld, þannig við ákváðum bara að láta verða af því.
Persónulega fannst mér þessi mynd svo mikil þvæla og allt of aggressive, þannig ekkert var trúverðugt í henni. Mjög mikill Ring fílingur í henni. Ég gef henni hálfa stjörnu, þar sem það er smá spenna á köflum, en ég mæli engan veginn með henni!
Svo eftir video glápið, fórum við smá á rúntinn. Tókum nokkra laugara og svo fórum við í Hafnarfjörð að sækja fulla fólkið.
Gugga og Ingvar voru á Pizza Hut árshátíð í Hafnarfirði. Ég er ekki vanur að taka yfir-farþega, en varð að gera það handa Ingvari kallinum, svo hann færi ekki einn heim. 
Svo skutlaði ég Ingvari og "vinkonu" hans heim til Ingvars og Rakeli upp í Hraunbæ, og svo fórum við Gugga bara heim að lúlla.
Núna er ég að fara aftur í skólann. Í kvöld ætla ég að mixa aðeins í græjunum í bílnum, svo gírstöngin rekist ekki í spilarann þegar hann opnast. Eins heppilega og það hljómar, átti pabbi svona car-mount-kit fyrir Ford, þannig maður hendir þessu í bílinn í kvöld.
Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (