Deila á Facebook
« Pest að ganga? | Aðalsíða | Föstudagur - Fastur í gírnum »

Veikindi ofl.
Skrifað fimmtud. 30. mars 2006 - 16:26
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Já, eins og þið ættuð að vita, er ég bara búinn að vera liggjandi heima veikur. Búinn að þamba svo mikið C-vítamín, og búinn að taka ótal Wellman töflur. Og svei mér þá, það er að virka. Ég er kominn niður í 36,97°C hita. Í gær var ég hátt uppi í 39°C og var gjörsamlega að deyja.

Allavega, í gær var bara tekið það rólega. Ég fór veikur heim úr skólanum. Svo var ég bara uppi í rúmi sofandi. Svo um kvöldið, bað ég mömmu um að fara út í BV og kaupa handa mér bragðaref. Auðvitað gerði hún það. Ég hringdi í Sigga Svans upp í BV og bað hann um að hafa tvær spólur og bragðaref m/ daim, mars og þrist, tilbúinn. Auðvitað gerði hann það, og held ég að þetta sé flottasti og besti bragðarefur sem ég hef fengið.

Svo vaknaði ég bara í morgun, mældi mig til þess að athuga hvort ég ætti að fara í skólann. Ég var með 60 kommur þá, þannig ég ákvað að sleppa skólanum. Svo núna er ég bara búinn að vera sofandi og mamma búin að vera færandi mér C-vítamín, Wellman og í þetta skiptið bacon. Jú jú, hún tók sig til og steikti 10 bacon sneiðar. Namm! Það er gott að eiga góða mömmu.

Núna er ég bara að fara að gera mig kláran fyrir vinnuna kl 6. Ég er búinn að ákveða að fara að vinna núna á eftir, þar sem mig nauðsynlega vantar pening. Það verður bara að koma í ljós hvort mér slái niður eða ekki.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():