Deila á Facebook
« Þreyta og meiri þreyta | Aðalsíða | Nýjir broskallar »

Rekinn úr tíma
Skrifað miðvikud. 5. apríl 2006 - 14:30
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, þá var ég rekinn úr tíma í fyrsta skiptið á þessari önn. Ég var bara í tíma og kennarinn var að byrja að lesa upp, þegar síminn minn hringir og auðvitað var það systir mín að hringja frá útlöndum. Ég, eins og asni, tek upp símann og svara, og svo eftir að ég legg á segir hann mér að fara út. Ég spyr hann um séns en hann gat ekki verið að gefa mér séns þegar hann hefur ekki gefið neinum öðrum séns. Hann spurði þá hina hvort ég ætti að vera rekinn út og hófst rosaleg umræða um þetta. Ég auðvitað sagði bara: "Ég viðurkenni brot mig og skal fara út." og labbaði út.

Ástæðan af hverju systir mín var að hringja, var sú að ég þurfti að sækja eitthvað blað inn á skrifstofu, sem var stílað á hana. Eftir að hafa labbað út, fór ég niður á skrifstofu og sótti þetta blað. Þá kostaði þetta blað auðvitað 100 kr. og ég fer inn til fjármálastjórans til að borga, þar sem hún var bara með posa. Svo þegar ég er búinn að borga, labba ég beina leið út og gleymdi helvítis blaðinu! En ætli ástæðan sé ekki bara að ég hafi verið hálf bitur út af þessu rek'út dæmi.

En núna í morgun fór ég upp í Mosó og fór til höfuðbeins- og skjaldhryggjarjafnara. Ég mætti þar kl hálf 12 og var frekar svartsýnn á þetta. Eftir sirka klukkutíma labbaði ég út geðveikt hress og endurnærður eftir þetta. Þetta var geðveikt þægilegt og mæli eindregið með þessu fyrir alla, bæði konur og karla.

Hún bað mig um að leggjast á bakið á einhverjum bekk sem var þarna. Svo fór hún með hendurnar undir bakið á mér og nuddaði eitthvað. Svo tók hún hausinn á mér og vaggaði honum til og frá og nuddaði hann. Svo í lokin tók hún fæturnar á mér og hrissti þær og nuddaði undir ylinni. Voða þægilegt.

En í gær þá var bara tekið rólegt kvöld. Fór til Jökuls og fékk mér bjór hjá honum. Svo skruppum við bara á Subway og hann fékk sér að borða. Svo skutlaði hann mér bara heim.

Allavega, núna er ég bara að bíða eftir að fara í tíma og svo er ég að spá í að skella mér í ljós. Það er yndislegt að slappa smá af í ljósum. Þó ég hafi fengið næga afslöppun í dag hjá þessum höfuðbeins- og skjaldhryggjarjafnara, þá er meiri hvíld og afslöppun bara holl.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():