Deila á Facebook
« Ég elska krakka og krakkar elska mig | Aðalsíða | Mikið að gera »

Ekkert væl!
Skrifað miðvikud. 2. nóvember 2005 - 00:24
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég vil byrja á því að segja að ég lamdi enga krakka í dag. Hehehe. Djók! Jæja allavega, í gærkvöldi fór ég á Dragshow sem var haldið uppi í Borgarholtsskóla. Grétar vinur minn var að keppa og var "hún" bara nokkuð sæt. Því miður vann hann ekki og lenti í engu sæti. Mér fannst hann standa sig best! Kannski maður taki þátt á næsta ári. Ég er nú svo helvíti kvenlegur, hehe.
Svo vakti ég til 5 í gærnótt þar sem ég gat ekki sofnað út af slæmri frétt sem ég fékk.

Þegar ég náði ekki að sofna, fór ég á rúntinn...EINN! Já, það er stundum gott að vera einn og geta hugsað skýrt. Svo kom ég heim kl að verða 5 og sofnaði.

Núna í dag, byrjaði ég á því að sofa út. Svaf til 11 og dreif mig svo í skólann. Kór féll niður þannig ég var búinn í skólanum kl 4 í staðin fyrir 6. Eftir skóla fór ég upp í Bónus Video og ræddi við yfirmann minn um launin mín. Ég var ekki sáttur. En svo kom í ljós að ég hafði skrifað á mig fyrir 24.000 kr!!! Ég fór í sjokk. Ég er nokkurn veginn búinn að jafna mig eftir þetta sjokk með launin.

Ég keypti mér í dag miða á Hollywood ballið sem er haldið á morgun. Spurning hvernig maður eigi að vera klæddur. Er ekki bara jakkaföt málið?

Eftir það fór ég heim að læra.
Vitiði vilja eitt mesta svekk hungursins? Það er það þegar pabbi manns segist ætla að panta pizzu. Svo líður klukkutími og ég geðveikt spenntur eftir pizzunni. Svo kemur mamma mín stuttu seinna með einhvern kjúkling og þá varð ekkert úr pizzunni. Djöfull var það svekkjandi!

Seinna um kvöldið eftir lærdóminn fór ég að rúnta með Kamil vini mínum. Hann fékk bílinn sinn úr viðgerð í dag þannig hann ákvað að bjóða mér á rúnt. Við kíktum á laugarveginn með Rammstein í botni (what a surprise!), svo fórum við á Pool stofuna lágmúla og ég fékk mér þar einn bjór. Svo fórum við og sóttum kærustuna hans í vinnuna. Svo fórum við bara heim. Takk fyrir rúntinn, Kamil minn.

Núna er ég bara kominn heim og er eitthvað að vesenast smá í Topp5.is og svo fer ég örugglega bara að sofa. Ég á ekki að mæta fyrr en kl 11:20 í skólann á morgun þannig ég get hangið aðeins í tölvunni fram eftir.

Miðvikudaginn næsta er ég að fara í leikhús á leikritið Brim með krökkunum í Félagsfræði 203.
Þetta leikrit er um konu sem fer út á sjó bara með körlum og sýnir félagsfræðilega hvernig karlarnir haga sér öðruvísi í kringum kvenfólk heldur en aðra karlmenn.

Jamm, skemmtó! Heyrumst!




Athugasemdir ():