Mikið að gera
Skrifað föstud. 4. nóvember 2005 - 00:57Jamm, djöfulli mikið að gera hjá mér þessa dagana. Allt í rugli.
Djöfull lenti ég í leiðinlegu atviki núna í gær. Eftir skólann fór ég í Kringluna og keypti draumasímann (Sony Ericsson K750i).
Um leið og ég var kominn á efra Kringluplanið springur framdekkið mitt! Grétar var með mér þannig við redduðum þessu. Settum bara aumingja á hann (dekk sem má ekki keyra hraðar en 80 á). Svo fórum við og keyptum símann hjá Símanum, brunuðum svo í Og Vodafone síðumúla og Maggi elska í Live2Cruize var svo yndislegur að aflæsa símanum fyrir mig. Ég fékk hann læstan bara fyrir kort hjá Símanum. Ef Maggi hefði ekki verið þarna, hefðu þeir tekið símann minn yfir nótt og ég hefði ekki fengið hann fyrr en næsta dag! Maggi, thank you.
Jæja, allavega ég var á Borgó balli í gær. Grétar kom og sótti mig og svo fórum við á ballið. Ég get nú ekki sagt mikið um þetta ball nema að það var ekki skemmtilegt. Veðurguðirnir voru að spila og það voru bara busar þarna!
Ég drakk einhverja 4 bjóra og fann ekkert á mér. Waste of money!
Ég er byrjaður að drekka svo oft að ég er farinn að þola allt. 
Eftir ballið fórum við Grétar og Guðrún bara heim. Stoppuðum á Hlölla og fengum okkur að éta.
Svo bara beinustu leið heim. Fór svo að sofa kl sirka 3. 
Ég vaknaði kl 9:30 í morgun og gerði mig kláran í skólann. Eftir skólann fór ég í kór og svo fór ég beint að vinna. Var nú bara að koma heim úr vinnunni núna. Skellti mér svo í sturtu og er bara að fara að sofa rétt bráðum.
Ég lenti í svo fyndnu rugli áðan. Það var strákur sem kom upp í Bónus Video og ætlaði að kaupa sígarettur. Ég spurði hann um skilríki og hann sýndi mér skilríkin sín og þar stóð 88, sem sagt hann var ekki orðinn 18 ára. Ég segi honum að hann geti ekki keypt sígarettur og þá fer hann að rífast við mig og segir að hann hafi fengið gallað skilríki. Sem sagt að hann væri fæddur 86 en þeir hefðu óvart prentað 88. Djöfull var það fyndið. Hversu mikill hálfviti heldur gaurinn að ég sé.
Svo er líka svo fyndið þegar gaurar sem líta út eins og 88 módel koma með skilríki sem stendur 83 á. Hahaha, ég er ekki fæddur í gær. Ég veit vel að það er ekkert mál að breyta 88 í 83.
Allavega pilturinn fékk engar sígarettur. Greyið.
En já, ekkert væl héðan í frá.
Ég talaði við Huldu núna um daginn. Rosalega var gaman að heyra í henni. Við erum núna bara góðir vinir.
Svo hringdi hún í mig í kvöld. Yndislegt að heyra í henni.
Ég geri mér samt engar vonir. Bara vinir. 
Allavega, ég er farinn að sofa, góða nótt elskurnar!

Athugasemdir (