Deila á Facebook
« Amsterdam djamm - Eiturhresst! | Aðalsíða | Þynnka »

FJMS - Fjármálastjórinn?
Skrifað föstud. 14. apríl 2006 - 20:51
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég vaknaði í dag kl hálf 2 og gerði mig kláran fyrir vinnuna. Svo fór ég í vinnuna. Svo núna kl 6 kom ég heim. Þá komu Kamil og Danni til mín og við spjölluðum og reyktum karton af sígarettum. Svo fóru þeir, og núna er ég bara að spá í hvað ég eigi að gera í kvöld. Er málið að kíkja til Ívars í gítarpartý og detta rækilega í það, eða er málið að slappa bara af heima og taka það rólega? Ég veit ekki. Ætli maður kíki ekki til Ívars og horfi svo á þessa blessuðu mynd. Ég er samt orðinn svo helvíti slappur, að mér finnst ég vera að deyja. Rakel, vinkona mín, hélt því fram að ég væri bara með svona 2 daga þynnku. Það gæti vel verið.

En já, ég byrjaði á skólaverkefni fyrir TÖL núna áðan. Ég er búinn að ákveða að byggja svona lána- og skuldakerfi. Fólk getur þá bara skráð sig inn og haft yfirlit yfir öll lán, sem þau veita, og allar skuldir, sem aðrir skulda þeim. Er það ekki bara sniðugt? Ég er búinn með svona 30% af þessu, og þetta á eftir að taka smá tíma. En ég held þetta sé ágætis hugmynd fyrir verkefni. Ég er m.a.s. kominn með nafn á þetta og verður það FJMS (stytting á Fjármálastjórinn). Ég veit um helling af fólki sem vantar svona, eins og t.d. mig. Og það er svo leiðinlegt að vera með yfirlit yfir þetta í Notepad eða Excel, þar sem maður ræður ekki neinu þar. Svo kannski gerir maður þetta opinbert, ef þetta á eftir að verða flott, sem ég efast ekki um. Kaupi lén fyrir þetta og geri þetta huge.

Hehe, gaman að þessu.




Athugasemdir ():