Þynnka
Skrifað föstud. 14. apríl 2006 - 21:09Ég fór svona aðeins að spá í hvað þynnka/timburmenn væri. Af hverju maður verður "þunnur" o.s.frv.
Ég komst að því fyrir svolitlu síðan að þynnka/timburmenn væri ekkert annað en ofþornun líkamans. En af hverju ofþornar líkaminn? Ætli það sé ekki út af því að lifrin byrjar að brjóta niður alkóhólið með því að breyta því í asetaldehýð, sem er eiturefni og veldur þynnku. Einnig við drykkju losar maður meira þvag, og þ.a.l. ofþornar líkaminn.
Vísindavefur Háskóla Íslands túlkar þynnku svona:
Sumu fólki verður óglatt, fær höfuðverk, o.s.frv. Ég fæ bara gríðarlegan svima sem breytist svo í rosalegan höfuðverk, og finnst eins og hausinn minn sé að springa. Mér verður samt aldrei flögurt.
Hvernig er hægt að sporna gegn þynnku/timburmönnum?
Þú getur gert nokkra hluti, til þess að sporna gegn því að verða þunn/ur. Þú getur t.d. drukkið mikið vatn eftir drykkjuna og í miðri drykkju. Mjög gott er að fá sér vatn inn á milli. Svo er náttúrulega lífsnauðsynlegt að fá sér að borða áður en maður byrjar að drekka, því annars gæti það endað með því að þú myndir bara deyja eftir örfáa bjóra.
Borða vel, það er gott ráð.
Svo geturu auðvitað gert svolítið sniðugt sem Halli, vinur minn, kenndi mér um daginn. Það er að fá sér eina Ibufen áður en þú byrjar að drekka. Þar sem Ibufenið bindur vatnið sem er í líkamanum fyrir, og því verður minna vökvatap þegar þú byrjar að drekka. Þá er líkaminn með nægan vökva næsta dag eftir, og verður þ.a.l. minna þunn/ur.
Svo er það auðvitað síðasta ráðið, og það er að fara á fyllerí og taka svo bara Alkaseltzer daginn eftir. Tvær töflur af því eiga víst að virka gegn þynnkunni. En ef maður horfir á þetta frá líffræðilegu sjónarmiði, sé ég ekki hvernig það eigi að virka, þar sem líkaminn þarfnast vökva, og Alkaseltzer er ekkert að fara að dæla í þig vökva. En ég heyrði að þetta virkaði, þannig það er um að gera að prófa.
En það sem ég þoli ekki, er þegar fólk segir: "Ég verð aldrei þunn/ur". Mig langar virkilega að sparka í það fólk.
En já, hvað segið þið? Verðið þið þunn og kunnið þið einhver ráð við þynnku/timburmönnum?
Fínt að byrja smá umræðu um þetta.
Ég komst að því fyrir svolitlu síðan að þynnka/timburmenn væri ekkert annað en ofþornun líkamans. En af hverju ofþornar líkaminn? Ætli það sé ekki út af því að lifrin byrjar að brjóta niður alkóhólið með því að breyta því í asetaldehýð, sem er eiturefni og veldur þynnku. Einnig við drykkju losar maður meira þvag, og þ.a.l. ofþornar líkaminn.
Vísindavefur Háskóla Íslands túlkar þynnku svona:
http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=2361
Nokkrir þættir koma við sögu þegar timburmenn koma í heimsókn. Má þar fyrst nefna að flestir áfengir drykkir innihalda aukaafurðir gerjunar sem mætti kalla aukaefni. Þessi aukaefni eru ein orsök timburmanna. Almennt gildir að eftir því sem drykkur er dekkri því meira er af aukaefnum í honum.
En þótt drukkinn sé alveg hreinn spíri losnar maður ekki við timburmenn. Ástæðan er sú að lifrin byrjar að brjóta niður alkóhólið með því að breyta því í asetaldehýð sem er eiturefni og veldur timburmönnum.
Ofþornun sem stafar af þvagræsandi áhrifum alkóhóls er önnur orsök timburmanna. Að lokum má nefna bein ertandi áhrif alkóhóls á magaslímu og taugakerfi sem leiða til ógleði, pirrings og handskjálfta.
Besta ráðið til að koma í veg fyrir timburmenn er að drekka í hófi. Að drekka mikið vatn áður en lagst er til hvílu hjálpar til við að hindra ofþornun. Magnýltöflur koma ef til vill í veg fyrir höfuðverk morguninn eftir en gætu aukið á ertingu í maga.
Versta ráðið er að fá sér annan drykk. Það er fyrsta skrefið í átt að áfengissýki.

Athugasemdir (