Deila á Facebook
« Þynnka | Aðalsíða | Morgunblogg - Kvöldið »

Gærkvöldið - Lengsta bloggið?
Skrifað laugard. 15. apríl 2006 - 21:51
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
"Ef þú ætlar að gera þetta á annað borð, af hverju þá ekki að gera þetta með stæl?"

Það er ég svo sannarlega búinn að gera. Ég skellti mér á djammið í gær aftur. Ég held ég sé búinn að djamma í heila viku, eða svona nánast.

Kamil kom til mín og vorum við smá stund hjá mér. Ég byrjaði að drekka, og var hann bara edrú. Svo fórum við til Viktors, vinar Kamils. Fínn náungi. Svo spjölluðum við heillengi við vini Viktors um bíla. Einn af þeim átti víst Mercedes-Benz C34 AMG fleka. Djöfulsins tæki er það!

Svo fórum við bara heim til Kamils og Kamil byrjaði að drekka. Svo kom Jökull, eftir að hann, Óli og Danni voru í bíó á myndinni Lucky Number Slevin. Jökull og Kamil sættust LOKSINS!!! Þetta ósætti á milli þeirra er búið að vera þess valdur að maður verður að velja á milli vina sinna, og það er hreint út sagt ömurlegt! Núna ættum við að geta verið allir saman, sem er æðislegt!

Eftir þetta kíktum við í partýið til Ívars. Þar var helling af fólki. Því miður var Kristín, fyrrverandi kærasta Kamils, þarna, þannig það varð sprenging. Ég hefði átt að hugsa, að vera ekki að draga hann inn í eldinn. En eftir mikið rifrildi við Kamil eftir þetta, gátum við loksins farið að djamma saman.

Við kíktum auðvitað í bæinn. Byrjuðum á Glaumbar, eins og vanalega. Svo var bara tekið smá pöbbarölt á þetta. Ég man allavega eftir því að hafa drukkið mjög mikið, og þynnkan núna segir líka til um það. En hvað gerir maður þá? Fær sér Alkaseltzer? Ónei, bara afréttara!

Svo man ég eftir því að við kíktum á Sólon, þar sem Gummi bauð okkur upp á Handboltaskot og bjóra. Hann var eitthvað pirraður, greyið, en það er alveg skiljanlegt, þar sem Ingvar var frekar uppáþrengjandi þarna, hrópandi og veifandi.

Svo var kíkt á dansgólfið og dansað mikið man ég. Ég hitti stelpu sem var í Amsterdjamm partýinu. Hún heitir Hildur. Alveg gullfalleg stelpa. Ég fór eitthvað að dansa við hana. Voða gaman. Frænka hennar var eitthvað að ýta mér í burtu, eða draga hana í burtu frá mér, en hún vildi bara ekkert fara frá mér. Svo spurði ég frænku hennar hvort hún væri eitthvað á móti mér, og hún sagði nei. Hún hélt bara að ég væri einhver player, en í lok kvöldsins leist henni bara ágætlega á mig, þannig ég fékk að vera með Hildi. Svo fór hún og ég fór svo stuttu eftir það. Svo hitti ég hana fyrir utan Sólon og löbbuðum við saman niður laugarveginn. Svo fór hún inn á Pizza King að fá sér að borða, með vinkonu og frænku sinni. Og kvaddi ég hana þar. Fékk samt númerið hennar, þannig ég gæti verið í sambandi við hana.

ÉG PLAYER? NEI!!! ÉG REYNI EKKI VIÐ ALLT SEM HREYFIST! ÉG VEL BARA SÉRSTAKAR STELPUR! Bara að koma því á hreint, þar sem það eru allir að segja að ég sé player.

En svo eftir að ég kvaddi Hildi, fór ég aftur á Sólon. Þar hitti ég svo Kamil og splæsti ég á hann bjór og skoti (svona til tilbreytingar ). Á þessum tímapunkti vorum við orðnir svo haugafullir að það var hálf grátlegt. Ljósin voru kveikt og þurftum við að yfirgefa svæðið. Við fórum á Prikið, en stuttu eftir að við komum þar inn, hætti DJ'inn að spila, þannig við fórum bara.

Við fórum yfir á Pizza King og fengum okkur að borða. Ég pantaði mér heila 18" pizza sem ég borðaði á leiðinni í taxa. Við fengum engan taxa og nenntum engan veginn að bíða í þessari leigubílaröð. Svo löbbuðum við Tjarnargötuna og mér datt í hug að við myndum bara fara fyrir framan eitthvað hús þarna og hringja í leigubíl og segja honum að koma fyrir framan þetta hús. Hehehe, algjört snjallræði! En svo kom taxinn ekkert, þannig Kamil hringdi bara í pabba sinn og skutlaði hann okkur heim.

Ég sofnaði víst á grindverkinu þarna fyrir utan húsið hjá Tjarnargötunni. Hehe, fyndið. En svo vaknaði ég þegar pabbi Kamils kom. Svo þegar ég kom heim, gat ég varla opnað húsið mitt, þar sem ég hitti ekki lyklinum í skráargatið. Svo man ég eftir því að hafa dottið geðveikt mikið um allt inni. En ég loksins náði að koma mér í rúmið.

Gaman að þessu. Svo vaknaði ég grútmyglaður og þunnur í dag. Kamil og Danni voru svo góðir að kaupa aðra kippu handa mér í dag, þannig ég er allavega ekki bjórlaus. Jökull á afmæli í dag, þannig ætli það sé ekki bara djammið í kvöld. Til hamingju með 21 árs afmælið, kallinn minn. Vandamálið er bara að mig langar engan veginn í bjór! Ég er búinn að drekka svo mikinn bjór að ég er kominn með ógeð! En vonandi yfirstíg ég þann þröskuld með því að klára einn bjór. Svo voru þeir heillengi hérna og horfðum við á Just Friends. Mjög fín mynd, þó hún sé svolítið langdregin. Mikið um að hann geri hlutina aftur og aftur, og það verður þreytt til lengdar.

Ég man allt í einu að ég hitti Aron, sálfræðikennarann minn, á Sólon. Hann var að segja mér að hann væri með miklar vonir og væntingar um mig, og að honum litist vel á mig sem nemanda. Ekki slæmt að heyra þetta frá kennaranum sínum. Þessi maður er líka frábær kennari og frábær persóna.

En núna er ég bara að skrifa þetta blogg og er smá með annað augað í Fjármálastjórakerfinu sem ég er að búa til. En ég fer bráðum að slútta því og drífa mig í sturtu og gera mig kláran fyrir kvöldið. Það er allavega STÓRT djamm á morgun, þannig þetta kvöld verður rólegt. Allavega rólegra en hin kvöldin. Verð ekki það lengi í bænum, þannig maður getur ekki reddað sér fari, nema með taxa. Verð bara stutt.

En já, núna ætla ég að fá mér að borða og svo gera mig kláran. Þetta blogg er komið ágætt. Ég held að það séu margir sem nenna ekkert að lesa þetta, og ef þú ert ein af þeim manneskjum sem lásu þetta, áttu skilið að fá Thule.

Segjum þetta gott í bili...




Athugasemdir ():