Morgunblogg - Kvöldið
Skrifað sunnud. 16. apríl 2006 - 06:05Ég ákvað að blogga smá svona áður en ég fer að sofa.
Í kvöld var bara djammað eins og um alla virka daga.
Kamil, Jökull og Danni byrjuðu á því að koma til mín. Svo horfðu þeir á Ocean's Eleven á meðan ég fór í sturtu og gerði mig kláran. Svo kláruðum við að drekka og kíktum svo í partý til Kella. Það var mjög gaman í því partýi og björguðu þessir gítarsnillingar þessu (Kelli og Jónas).
Svo þegar við vorum orðnir vel í því kíktum við niður í bæ. Það lokaði kl 3 en við náðum að kíkja á nokkra staði áður en það lokaði. Við kíktum fyrst á Prikið, þar sem Kamil ætlaði að hitta einhvern gaur. Hann fann ekki gaurinn en í stað hitti ég Birkir, sem var með mér úti á Ítalíu. Djöfull var hann hress og gaman að hitta hann.
Svo fórum við yfir á Sólon. Þar var Matti að dyravarðast og hleypti okkur félögunum VIP. Svo fórum við á dansgólfið þar og það var frekar fúlt. Við hittum þar Ingvar. Svo fórum við á barinn þar sem Gummi var að vinna og hann splæsti á mig, Kamil og Ingvar handboltaskoti. Svo fórum við bara að dansa. Frekar fúlt sko.
Svo fórum við á Glaumbar og Gaukinn. Þar var frekar fúlt líka, en við gerðum gott úr því. Dönsuðum smá og drukkum eins og við vorum vanir.
Svo eftir þetta bæjarrugl fórum við á Aktu Taktu og fengum okkur að éta. Svo kíktum við í partýið hjá Kella aftur og var ágætt þar. Hildur var dauð og Vilborg lá bara inni í rúmi hjá henni. Hálfpartinn að deyja líka, greyið. Ingvar var hjá henni og hösslaði hana, enda gaurinn búinn að fá séns á henni á Gauknum á miðvikudaginn sl.
Svo vorum við smá stund hjá Kella, en það dó bráðlega og fórum við Helga bara í annað partý í Mosó. Ég ætlaði að fá Ingvar með mér en hann var bara slefandi upp í Vilborgu, þannig hann vildi ekkert koma. Æðislegt!
Svo fórum við Helga bara í partýið þarna í Mosó. Það var ömurlegt í þessu partýi! Allt einhverjir 16 ára krakkar þarna. Ég skemmti mér engan veginn þarna. Ég þekkti bara Helgu og svo einhvern Counter-Strike gaur sem heitir Binni og kallar sig tragedy í Counter-Strike. Æði! 
Svo fengum við Helga ungan dreng til að skutla okkur heim. Hann skutlaði Helgu heim og svo skutlaði hann mér í hraðbanka svo ég gæti borgað honum smá bensínpening. Og svo skutlaði hann mér bara heim.
Núna er ég bara kominn heim og er að fara að sofa. Svo er auðvitað djamm á morgun, þar sem það er Páskadagur.
En myndirnar sem ég tók eru hérna.

Athugasemdir (