Deila á Facebook
« Gærkvöldið - Frír Subway! | Aðalsíða | iPod galli? »

Pælingar
Skrifað föstud. 21. apríl 2006 - 05:37
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Nokkrar stórskemmtilegar pælingar sem ég þýddi.

Af hverju er 11 á ensku ekki borið fram sem "onety one"?

Ef ást er blind, af hverju eru þá undirföt svona vinsæl?

Ef ást er blind, hvernig getum við þá trúað á ást við fyrstu sýn?

Fara starfsmenn í te-verksmiðjum líka í kaffipásur?

Mæður fæða börn sín með litlum skeiðum og göflum. Hvað ætli Kínverjarnir geri? Nota þeir tannstöngla?

Ef maður spilar spólu í botni, brjálast nágrannarnir. Hvað gerist hins vegar ef maður spilar tóma spólu í botni og nágranninn er látbragðsleikari?

Ef 4 af hverjum 5 manneskjum þjást af niðurgangi. Þýðir það að 5. maðurinn njóti þess?

Nokkrar fleiri...

Hvernig vita blindir hvenær þeir eru búnir að skeina sér?

Ef einhver sem er mállaus blótar á fingramáli. Þvær þá mamma hans honum um hendurnar?

Ef svarti kassinn í flugvélum eyðileggst aldrei í flugslysum. Af hverju er þá ekki öll flugvélin gerð úr þessu efni?

Af hverju eru klósettin á bensínstöðvum alltaf læst? Eru þau hrædd um að einhver þrífi þau?

Ef mannkynið varð til af öpum. Af hverju eru þá apar ennþá til?

Af hverju er "best fyrir dagsetning" á súrum rjóma?

Ef þú reynir að mistakast, og þér heppnast það. Hvort hefuru þá gert?

Af hverju eru björgunarvesti undir sætunum í flugvélum, í staðinn fyrir fallhlífar?

Ef þú ert í bíl á hraða ljóssins. Hvað gerist þá ef þú kveikir á framljósunum?

Þegar þú ert að keyra og ert að leita að einhverju heimilisfangi. Af hverju lækkar maður alltaf í græjunum?

Af hverju setja gamlar konur á sig andlitsfarða til þess að líta út fyrir að vera yngri, en ungar stelpur setja hann á sig til þess að líta út fyrir að vera eldri?

Er ólöglegt að skíra barnið sitt "Ónefndur"?

Af hverju frýs áfengi ekki?

Af hverju bæta þeir ekki tímanum á meðan við erum í maganum á mömmu okkar, við aldur okkar?

Af hverju heitir þetta "pepperoni" ef það er enginn pipar í því?

Hversu gamalt þarf eitthvað að verða svo það verði forngripur?

Af hverju eru franskar ekki grænmeti? Þær eru bara djúpsteiktar Kartöflur.

Af hverju eru flott munstur á dýnum þegar það eru alltaf lök utan um þær?

Ef maður myndi deyja með spangir, myndu þær verða teknar af?

Af hverju er "Joey" stytting á nafninu "Joe", þegar "Joey" hefur fleiri stafi?

Er til blindrafólk fyrir blinda hunda?

Af hverju er kattamatur ekki framleiddur með músabragði?

Af hverju þrífur maður handklæði? Er maður ekki hreinn þegar maður notar þau?

Af hverju, þegar þú blæst framan í hund, verður hann reiður. En þegar hann fer í bíl, stingur hann alltaf hausnum út um gluggann?

Af hverju er Tarzan ekki með skegg?

Dreymir blindu fólki?

Af hverju er þetta kallað "black light", þegar þetta er í raun og veru fjólublátt?

Er í alvöru smjör í hnetusmjöri?

Er orðið "orðabók" í orðabókinni?

Drekka kýr mjólk?

Af hverju eru göt á kleinuhringjum?

Ef þú værir í flugvél sem væri á hraða hljóðsins og þú myndir ganga fram og til baka í flugvélinni. Væriru þá að ganga á meiri hraða en hraði hljóðsins?

Af hverju er hringlaga pizza sett í ferkantaðan kassa?

Af hverju eru allar ofurhetjur í spandex-göllum?

Þegar fólk segir "ég er svo þreyttur að það er ekki einu sinni fyndið" eða "mér er svo illt í hausnum að það er ekki einu sinni fyndið". Af hverju ætti það að vera eitthvað fyndið?

Af hverju verðum við bara krumpuð á tám og puttum í heitu vatni, en engu öðru?

Af hverju er páskakanínan með egg? Kanínur verpa ekkert eggjum.

Er hægt að vera með ofnæmi fyrir vatni?

Af hverju er sagt "ef ég mætti spyrja" þegar við spyrjum strax eftir á, án þess að fá leyfi frá viðkomandi?

Af hverju er þetta kallað "sápuópera" þegar enginn syngur?

Hvort vaknaru eða opnar augun fyrst?

Jæja, þetta er komið gott. Þetta er of fyndið! Farinn að sofa!




Athugasemdir ():