Deila á Facebook
« Mikið að gera | Aðalsíða | Aldrei aftur »

Sony í ruglinu?
Skrifað föstud. 4. nóvember 2005 - 13:57
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Tæknirisinn Sony hefur núna undanfarin misseri verið að þróa hugbúnað sem hegðar sér líkt og trójuhestur, til að stoppa ólöglega afritun á geisladiskum.

Þessi hugbúnaður, sem hegðar sér líkt og trójuhestur, fer sjálfkrafa inn á tölvu notandans um leið og hann setur inn tónlistardisk sem er gefinn út af Sony. Þessi "trójuhestur" er ógreinanlegur af flestum vírus- og trójuvörnum, þar sem hann felur sig djúpt í Windows stýrikerfinu.

Maður að nafni Mark Russinovich hjá SysInternals vakti athygli á þessu máli og komst að því að fyrir skömmu að tölvan hans væri smituð af svokölluðu "Rootkit" forriti. Það er forrit sem er plantað djúpt í stýrikerfið. Hingað til hefur slík tækni ekki verið notuð nema af framleiðendum vírusa og trjójuhesta.

Mark Russinovich segir svo að hann hafi komist að því að þetta "Rootkit" forrit hefði borist í tölvuna í gegnum tónlistardisk frá Sony.
Vandamálið við þetta svokalla "Rootkit" forrit, er það að það er ekki hægt að eyða því út úr tölvu viðkomandi. Ef það er notaður einhverskonar hugbúnaður til að eyða honum út, getur verið að tölvan hætti að virka eðlilega.

Það liggur því ljóst að tónlistarútgefendur svífast einskis til að koma í veg fyrir ólöglega afritunartöku tónlistardiska, þó afritunartakan sé einungis til einkanota.

Það er svo spurning hvort að Sony sé ekki að brjóta einhver lög með þessu? Það er stranglega bannað skv. lögum að setja upp slíkan búnað án vitundar og leyfis notanda. Ég skil ekki af hverju þeir hafi ekki bara sett þennan skilmála í EULA (End User License Agreement).

Þið getið lesið allt um þetta hér.

Hvað finnst ykkur um þetta?




Athugasemdir ():