Deila á Facebook
« Kvenfólk og andlitsfarði | Aðalsíða | Kvöldið - Kaffihús & afmæli »

Kristall Plús - ávanabindandi?
Skrifað miðvikud. 26. apríl 2006 - 11:27
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég hef sl. daga lagt það í vana minn að drekka rauðan Kristal Plús, sem er léttkolsýrður drykkur með appelsínu- og blóðappelsínubragði. Ég er farinn að halda að það sé eitthvað ávanabindandi efni sem bindur mann gjörsamlega við þennan drykk.

Tekið af flöskunni

Kristall PLÚS er hitaeininga og kolvetnaskertur drykkur sem inniheldur léttkolsýrt íslenskt bergvatn, bragðbættur með hreinu ávaxtaþykkni sem gefur fyllra og betra bragð. Kristall PLÚS er þróaður með tilliti til manneldismarkmiða, drykkur sem er tákn um breytta hugsun og neyslu landsmanna.

Ég var eitt sinn kókisti á háu stigi. Drakk 2L þegar ég var í lægð, en annars 4L eða meira. Ég hætti vegna þess að pabbi sagði mér að hætta. Ég taldi mig einnig vera hættan þegar ég byrjaði að drekka Pepsi, í stað kók. Það fór líka upp í ofurháa neyslu, minnst 2L á dag.

Þegar ég loksins náði að draga mig frá þessu sífella Kók- og Pepsiþambi, ákvað ég að taka mig á og byrja að drekka eitthvað hollt, svona til tilbreytingar. Þá smakkaði ég þennan rauða Kristal plús, þegar hann kom fyrst á markað. Auðvitað varð ég háður honum, eins og öllu öðru. Ég drekk reyndar ekki mikið af honum, mest 1L á dag (2x1/2L), en mig langar alltaf í meira og meira.

Ég opna flöskuna, tek einn sopa og þamba. Það er alveg yndislegt að þamba þetta! Svo þegar ég er búinn að fá mér smá sopa, er flaskan hálfnuð!

Ég segi mig ekki vera hættan að drekka Kók og Pepsi, en ég fæ mér einstaka glas ef ég er á kaffihúsum eða þegar ég fæ mér einhverskonar matartilboð, sem inniheldur Kók/Pepsi í tilboðinu. Hvað getur maður annað gert? Afgreiðslufólkið má ekkert skipta þessu í neitt annað.

Ég fór aðeins að skoða innihaldið í þessum Kristal plús, og rakst á mikið af "sín" og "oxín" efnum. Ég þekki ekkert til þessara efna, enda hef ég aldrei verið neitt sérstaklega góður í efnafræði.

Fólk sem ég þekki, sem drekkur þennan drykk, segja líka að hann sé rosalega ávanabindandi. En hvað er það sem gerir þetta svona svakalega ávanabindandi?

Kannski er það bara hvað þetta er svalandi og gott á bragðið? En af hverju ætli þessi drykkur sé þá með aldurstakmark?




Athugasemdir ():