Deila á Facebook
« Sony í ruglinu? | Aðalsíða | Allt og ekkert »

Aldrei aftur
Skrifað laugard. 5. nóvember 2005 - 08:32
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, ég fór í bæinn í kvöld. Eiginlega í þeirri von um að hitta Huldu. Ég fór með Kamil og Danna og seinna kom Jökull líka. Við fórum inn á Glaumbar og þar var svei mér gaman.

Seinna fóru Kamil, Danni og Jökull og ég var eftir...aleinn! Svo fór ég að dansa og hitti þar Kollu, Evu og einhverja vinkonu þeirra. Ég fór að dansa við þær og það var rosa gaman. Svo kom vinkona hennar Auðar sem ég man ekki hvað heitir og fór að dansa við mig.

Ég drakk mikið í kvöld og er ég vel fullur núna. Þegar Glaumbar lokaði, fór ég á Gaukinn og lokaði þar stuttu eftir. Svo ákvað ég að fara bara heim en ég átti ekki fyrir leigubíl þannig ég ákvað að labba heim!!! Ég labba alla leið frá miðbænum og að laugarásbíó í grenjandi rigningu og svakalegu roki. Þegar ég kom að laugarásbíó ákvað ég að fara út á götu og putta far, þar sem það var ekki séns að ég gæti labbað alla leið heim í Grafarvog. Seinna stoppar strákur að nafni Gummi hjá mér og býður mér inn. Hann spyr hvert ég sé að fara og ég segi Grafarvog. Hann býður mér far á Esso Ártúnshöfða. Svo labba ég þaðan og reyni að putta aftur far og þá stoppar indæll útlendingur og býður mér að koma. Hann lét mig úr hjá Gullinbrú. Þakka ykkur kærlega fyrir, hverjir sem þið eruð.

Sem sagt, núna er ég búinn að labba hálfa leiðina frá miðbænum og heim í Grafarvog og líta fötin mín út svona:

Buxur
Jakki (ljósi parturinn er þurri parturinn og dökki parturinn er blauti parturinn)

Allt rennandi blautt. Ég er farinn að láta renna af mér. Ciao!




Athugasemdir ():