Sunnudagurinn - Broadway
Skrifað mánud. 1. maí 2006 - 08:14Héðan í frá mun ég ekki fara að djamma edrú. Kvöldið var ömurlegt, en hefði verið miklu skemmtilegra hefði ég bara verið í glasi! 
Ég byrjaði á því að vakna um kvöldmatarleytið. Ég vaknaði ekkert þunnur, þar sem ég var svo sniðugur að taka eina ibufen fyrir drykkjuna. Ibufenið bindur vatn í líkamanum, þannig það var ekkert vökvatap hjá mér.
En svo fékk ég mér að borða. Það var yndislegt lambalæri í matinn. Pabbi meistara grillari.
Svo bað Dagný mig um að hitta sig á Álfahólnum og fór ég þangað. Við fengum okkur að reykja og spjölluðum saman. Svo fór ég bara heim.
Þegar ég kom heim, lagðist ég aðeins upp í rúm og setti Westlife á fóninn. Ég steinrotaðist í svona 15-20 min. Ég veit ekki af hverju, var bara úrvinda. Svo hringdi Danni og spurði mig hvort ég ætlaði ekki á árshátíð hjá Bónus, sem haldin var á Broadway. Auðvitað ætlaði ég að kíkja. Hann sagði mér bara að hringja í Kamil, þar sem hann var með miðann minn.
Ég dríf mig í sturtu og geri mig kláran. Svo hringir Kamil og biður mig um að sækja sig til kærustunnar sinnar, þar sem ég ætlaði bara að vera edrú og hann ætlaði að drekka. Svo þegar ég er kominn til kærustunnar hans, þá hringi ég í hann og þá er hann bara mættur uppi á Broadway!
Ég fer þá bara á Broadway og legg hjá bankanum, og vona að bíllinn minn yrði ekki dreginn. Svo labba ég upp að hurðinni á Broadway og ætla að fara að labba inn þegar dyravörðurinn öskrar á mig: "Farðu frá! Farðu frá!" og ég fer auðvitað frá, þar sem ég er ekki vanur að vera erfiður edrú.
Svo henda þeir hávöxnum gaur út. Ég veit ekki af hverju þeir voru að henda honum út, en ég heyrði að það hefði verið út af einhverjum slagsmálum. Hann þarna fyrir utan alveg miður sín og fer að tala við mig, og svo vill hann faðma mig. Hann reynir að faðma mig og ég ýti honum aðeins frá, þar sem mig langaði ekkert að faðma hann!
Svo reyni ég að sleppa frá þessum brjálæðing og fer inn. Ég hitti Kamil inni og hann lét mig fá miðann minn.
Þegar ég kem inn blasir við mér helvíti gott partý. Allir fullir og helling af gellum þarna. Þó þetta hafi verið hálfgert grunnskólaball, þá var þetta ágætt. Er ekki annars meðalaldurinn á starfsfólki í Bónus 14 ára?
Þetta hefði samt verið dúndur, hefði ég bara verið að drekka!
Ég hefði getað fengið smá ölvun út úr þessum tveim bjórum inni í ísskáp, hefði ég bara þambað þá geðveikt hratt.
Allavega, ég fer þarna með Kamil og hittum við Danna, Kristíni og Kareni.
Svo er ekki mikið meira að segja nema að við erum þarna smá stund. Það var hálfpartinn runnið af Danna. Hann var víst ofurölvi klukkan 9 um kvöldið og hafði verið að drekka frá 4 um daginn.
En hann var orðinn rólegur þegar ég kom. Þetta var fínt.
Svo seinna um kvöldið hitti ég Litlu Björg. Ég spyr hana hvort hún viti símann hjá Óla Jóni. Óli Jón er gamall bekkjarfélagi minn sem ég hef ekki séð síðan í grunnskóla. Hún segir svo að hann sé þarna á Broadway, þannig hún gefur mér númerið hans og hringi ég í hann. Svo hitti ég hann, og þá er hann bara kominn með konu og barn. Uss!
Auðvitað þurftu hann og Kamil að fara að metast um hvort Óla bíll, Avensis 2005, hefði eitthvað roð í bílinn hans Kamils, Fiat Coupe. Samt algjör óþarfi hjá Óla að kalla bílinn hans Kamils rusl. Það æsti Kamil svolítið og byrjuðu þeir að hálfpartinn rífast og metast. Hvernig væri bara að útkljá þetta úti á braut, drengir mínir? 
Svo klukkan sirka 2 ákváðum við að fara. Ég, Danni, Kamil og Kristín röltum út í bíl. Svo tökum við smá rúnt og ætla ég síðan að skutla þeim á einhvern skemmtistað, en þá vildu þau bara rúnta meira. Svo sagðist Kristín bara ætla heim ef einhver ákveðinn dyravörður væri ekki að vinna á Gauknum. Hann var ekki að vinna, þannig ég skutlaði þeim bara heim. Á leiðinni voru þau farin að væla af hungri, þannig við skruppum á Aktu Taktu, en það var allt lokað þar, þannig við fórum bara á Devito's. Þar var allt opið, þannig Danni hoppar inn og kaupir 12" pizzu handa hungruðu turtildúfunum. Svo kemur hann aftur með 12" pizzu, 1L af kók og 2 dósir af kók. Hehehe, maður verður nú að fá eitthvað fyrir skutlið. Hí hí.
Svo skutla ég þeim bara heim til Kristínar og við Danni förum að rúnta. Svo hringir Kamil seinna og biður okkur um að kaupa meiri pizzu. Hahaha, svanga fólk.
Þannig við förum heim til Kristínar og ætlum að sækja kortið hans Kamils, en þá vill hann koma með að sækja pizzuna. Ekkert mál. Svo förum við bara og Danni er sendur til að panta pizzuna. Í þetta skiptið var það 18" pizza. Svo kemur Danni og Kamil býður okkur Danna sneið, og þáðum við það með þökkum. 
Á meðan Danni var að sækja pizzuna, byrjum við Kamil á trúnó. Við töluðum um margt og mikið varðandi stelpur og ástarmál. Ekkert sem þarf að enda á þessu blessaða bloggi mínu, en það er bara okkar á milli. Ekki satt, Kamil?
Ég býst við drama athugasemdum frá ónefndri manneskju, en vonum það besta bara.
Þetta var allt meint í góðu, ekki illu. 
Svo fórum við Danni bara á rúntinn. Tókum nokkra laugara og svona. Skruppum á BSÍ og keyptum meira kók. Enduðum svo á því að vera heillengi að týna klink sem var fast á milli sætanna, bara til þess að eiga fyrir kóki.
Svo seinna hittum við Ívar, Bjarna og Aron (fullur.is.com.net.org) og spjölluðum smá við þá. Svo tókum við laugara saman og enduðum svo á því að fara heim. Ég skutlaði Danna heim og svo fór ég bara heim.
Takk fyrir kvöldið, öllsömul, og afsakið hvað ég var leiðinlegur í kvöld. Allir voða hressir, fyrir utan mig.
Ég lofa að ég verði ekki edrú næst. 
Núna er ég búinn að vera að setja myndirnar frá kvöldinu inn. Þið getið skoðað myndirnar hérna. Síjú!

Athugasemdir (