Deila á Facebook
« Sunnudagurinn - Broadway | Aðalsíða | Mánudagur - Kaffihús »

R.I.P.
Skrifað mánud. 1. maí 2006 - 21:16
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það koma tímabil í lífinu, þar sem ef ég hefði trúað á guð, hefði ég efast um tilveru hans, og er þetta eitt af slíkum tímabilum.

Nú síðastliðin ár hafa þrír einstaklingar dáið af völdum slysfara. Öll voru þau tengd Iðnskólanum í Reykjavík, SIR (Skólafélagi Iðnskólans í Reykjavík) og Smell (tölvuleikjamót sem var haldið á vegum SIR). Ég þekkti þau voða takmarkað, en hafði hitt og spjallað við þau nokkrum sinnum. Allt frábært fólk.

Fyrir sirka mánuði síðan, datt strákur niður af 4. hæð og hlaut slæmra áverka. Honum var haldið sofandi á sjúkrahúsi í mánuð, en fékk stuttu seinna lungnabólgu, og náði sér aldrei af henni. Og nú í dag, 1. maí árið 2006, lést hann af völdum hennar. Hann tilheyrði einnig þessum hóp, þ.e. sem var eitthvað í kringum SIR og Smell.

Hvenær mun þetta taka enda? Þetta er farið að líkjast Final Destination myndunum. Það er eins og þau hefðu öll átt að deyja saman á einhverri samkomu, og nú deyja þau hvert á fætur öðrum, þar sem þau sluppu við dauðann. Eða hvað? Ég var í Iðnskólanum í Reykjavík, SIR og sótti Smell stöku sinnum. Þýðir það kannski að ég sé næstur?

Lárus - Conscript

Ég þekkti hann ekki neitt. Ég hef ábyggilega séð hann 1-2x, en kannast hvorki við nafn hans né gælunafn. Ég veit bara að hann dó fyrir nokkrum árum við það að bjarga mannslífum. Hversu kaldhæðið er það? Hann var á Björgunarsveitaræfingu og datt ofan í jökulsprungu. Þegar maður gerir eitthvað gott og deyr við það, eins og í þessu tilfelli að vera í sjálfboðastarfi við það að bjarga mannslífum, og láta líf sitt í staðinn, þá fer maður að hugsa; "Er guð virkilega til?", ekki satt?

Atli Þór Birgisson - Amplified

Ég þekkti hann líka voða lítið, en það eru nú nokkrar glæður í minni mínu þegar við vorum að reykja saman fyrir utan Iðnskólann. Mig minnir endilega að hann hafi verið helvíti fínn náungi. Ég man líka að hann var mjög mikið í kringum Smell.

Jónatan Helgi Rafnsson - Tanni

Síðast en ekki síst er það Tanni. Ég þekkti hann voða lítið, eins og flest öll af þessum fórnarlömbum, en man samt sem áður vel eftir honum. Hann var mikið á þeim tíma sem ég og vinir mínir sóttum Smell. Ég man ekki hvort hann hafi verið í Iðnskólanum en hann var allavega mikið í kringum það lið. Ég veit ekki betur en að hann hafi verið frábær strákur og sár missir fyrir alla. Þetta er drengurinn sem datt niður af 4. hæð, eins og stendur nánar fyrir ofan.

Þið getið vottað ykkar samúð með því að skrifa í gestabókina á blogginu hjá foreldrum Tanna.

Tanni


Ég vil bara enda á því að votta fjölskyldum og nærstöddum þessara aðila, mína dýpstu samúð vegna mikils missis.




Athugasemdir ():