Mánudagur - Kaffihús
Skrifað þriðjud. 2. maí 2006 - 02:57Í dag vaknaði ég allt of seint. Planið var að vakna snemma og vera duglegur að læra, en þess í stað vaknaði ég seint og lærði ekki neitt.
Kíkti á kaffihús með Grétari, Jökli og Dagnýju. Ég fékk mér bara kók, en Grétar og Dagný fengu sér nokkra bjóra og nokkur skot. Það endaði með því að Grétar var alveg snarölvaður. Svo komu vinafólk Dagnýjar; Kata og Siggi. Þau voru þokkalega hress á því, og fórum við bara öll að spjalla saman. Svo fóru þau stuttu seinna.
Svo fórum við bara heim. Kíktum aðeins á Subway, en það var lokað þannig Grétar, Jökull og Dagný fengu sér bara pylsu, en ég var blankur, þannig ég fékk mér ekki neitt. Svo skutlaði Jökull okkur bara heim.
Á morgun ætla ég að vakna snemma og vera duglegur að læra. Ég er að fara í þýskupróf á miðvikudaginn og svo íslenskupróf á fimmtudaginn. Spurning um að kíkja upp á Þjóðarbókhlöðu og læra þar, þar sem enginn getur truflað mann.
Ætli það verði ekki bara rólegt hérna á meðan ég er í prófum, og svo byrja ég að skrifa á fullu þegar prófin eru búin. En á meðan prófin eru, þá mun ég örugglega henda inn einni og einni færslu bara til að láta vita að ég sé lifandi. Svo eftir prófin mun ég koma með heillandi umræðuefni sem vekur þessa síðu upp úr lægðinni.
En annars, takk fyrir kvöldið, Grétar, Jökull og Dagný.

Athugasemdir (