Hvaða dagur er í dag?
Skrifað þriðjud. 2. maí 2006 - 18:21Æjá, það er ÚTBORGUNARDAGUR !
En það versta er að ég er ekki búinn að fá útborgað. Útborgun er dæmi um reglulega tímastyrkingu, eins og ég er að læra í Sálfræði. Það gerist reglulega, þ.e. á eins mánaðarfresti, og svo er þetta styrking, þ.e. við erum að fá eitthvað. Meira ruglið.
En ég er allavega ekki byrjaður að opna bók og stóra þýskuprófið er á morgun. Ég skil ekki hvað ég er að spá. Vaknaði kl 2 og fór beint í tölvuna og hef ekki hreyft mig úr henni síðan.
En Árni kom með góða pælingu um af hverju við værum bæði með MySpace og MinnSirkus. Íslendingar þurfa auðvitað alltaf að stela öllu og íslenska það. Ekki rétt?
En núna áðan fékk ég svaka árás frá einhverjum spambottum. Þeir settu inn helling af rugli í athugasemdirnar í blogginu og var ég heillengi að eyða því út. Núna er ég hins vegar búinn að banna allar IP tölurnar þeirra, þannig ég vona að þetta gerist ekki aftur í bráð. Það væri slæmt ef ég þyrfti að fara að setja inn staðfestingarkóða hingað, eins og á blog.central.is.
En núna ætla ég að rembast við að opna bók. Þetta gengur ekki lengur!
Athugasemdir (

