Ert þú NÖRD?
Skrifað þriðjud. 2. maí 2006 - 20:55Sjónvarpsstöðin Sýn leitar að þátttakendum í nýjum íslenskum raunveruleikaþætti sem ber heitið FC Nörd, eða Nördarnir, og verður til sýningar haustið 2006.
Þeir eru að leita að 16 karlmönnum á aldrinum 18-28 ára, sem líta á sjálfa sig sem nörda. Þeir ætla svo að láta einhvern "landsfrægan" þjálfara, þjálfa liðið og gera það að alvöru fótboltaliði á aðeins 3 mánuðum. Svo í lok þáttaraðarinnar, mun nördaliðið keppa við besta íslenska knattspyrnuliðið í æsispennandi fótboltaleik.
Hvað vakir fyrir Sýn? Mér finnst þetta orð "nörd" ekkert annað en niðrandi fyrir þetta fólk. Þið munið nú eftir myndinni Revenge of the Nerds. Ekki litu þeir nördar út vel í kastljósinu. Gátu þeir ekki notað aðra lýsingu, eins og t.d. "fólk sem er ekki í góðu formi og hefur lítinn sem engan áhuga á íþróttum"? Ég viðurkenni alveg að þetta er góð hugmynd og ábyggilega mjög skemmtilegt og gott sjónvarpsefni, en það er óþarfi að gera saklaust fólk að einhverju óþarfa aðhláturs- og skemmtiefni.
En þeir lofa víst þeim sem munu taka þátt í þessu, að þeir fari ekki bara í gott form, heldur fái líka aðstoð sérfræðinga í tísku, stíl og framkomu. Þeir eru sem sagt að afnörda nördana? En hafið þið spáð í því að nördar eru nördar út af því að þeir vilja vera nördar? Þeim finnst leiðinlegt að djamma og stunda félagslífið lítið sem ekkert, ekki vegna þess að þeir vilja það en geta það ekki, heldur vegna þess að þeir vilja bara vera heima í tölvunni að spila við "vini sína" í World of Warcraft.
En fyndnast við þessa auglýsingu hjá Sýn, er að þeir segja:
Þessar manneskjur sem verða í þessum þætti. Ég efast um að þeir muni njóta slíkrar aðdáunar og frægðar eins og David Beckham.
Lítum aðeins á þessar Idolstjörnur. Ég gleymdi því í nokkrar sekúndur núna hvað nýjasta Idolstjarnan héti, en svo mundi ég það allt í einu. Það er hann Snorri. Ég lít bara því miður ekki á hann eins og einhverja útlenska poppstjörnu. Þú kannt að syngja, til hamingju. Það sama verður með þessa þátttakendur í þessum Nördaþætti.
En um leið og ég sá þetta, fór ég að hugsa: Er þetta ekki bara enn önnur hugmyndin stolin frá útlöndum? Eins og með Minnsirkus, Idol stjörnuleit, og allt þetta rugl. Þetta er eflaust til úti og heitir "The reality show of the Nerds" eða eitthvað álíka. Ég efast ekki um það í eitt andartak.
Mamma álítur mig sem tölvufíkil, nörd, eða hvað sem þið viljið kalla þetta. Ég neita því ekki, en ég á ekki í neinum vandræðum með félagslífið. Ég er ekki með félagsfælni, þó mér finnist mjög gaman í tölvum. En ég tel mig nú ekki vera nörd, þó ég sé áhugamaður um tölvur. En mamma vildi endilega senda mig í þennan þátt. Verst að maður má helst ekki vera í skóla eða að vinna með skóla. Annars hefði ég slegið til.
En annars er meira um þetta hérna.
Hvað finnst ykkur um þetta?
Þeir eru að leita að 16 karlmönnum á aldrinum 18-28 ára, sem líta á sjálfa sig sem nörda. Þeir ætla svo að láta einhvern "landsfrægan" þjálfara, þjálfa liðið og gera það að alvöru fótboltaliði á aðeins 3 mánuðum. Svo í lok þáttaraðarinnar, mun nördaliðið keppa við besta íslenska knattspyrnuliðið í æsispennandi fótboltaleik.
Hvað vakir fyrir Sýn? Mér finnst þetta orð "nörd" ekkert annað en niðrandi fyrir þetta fólk. Þið munið nú eftir myndinni Revenge of the Nerds. Ekki litu þeir nördar út vel í kastljósinu. Gátu þeir ekki notað aðra lýsingu, eins og t.d. "fólk sem er ekki í góðu formi og hefur lítinn sem engan áhuga á íþróttum"? Ég viðurkenni alveg að þetta er góð hugmynd og ábyggilega mjög skemmtilegt og gott sjónvarpsefni, en það er óþarfi að gera saklaust fólk að einhverju óþarfa aðhláturs- og skemmtiefni.
En þeir lofa víst þeim sem munu taka þátt í þessu, að þeir fari ekki bara í gott form, heldur fái líka aðstoð sérfræðinga í tísku, stíl og framkomu. Þeir eru sem sagt að afnörda nördana? En hafið þið spáð í því að nördar eru nördar út af því að þeir vilja vera nördar? Þeim finnst leiðinlegt að djamma og stunda félagslífið lítið sem ekkert, ekki vegna þess að þeir vilja það en geta það ekki, heldur vegna þess að þeir vilja bara vera heima í tölvunni að spila við "vini sína" í World of Warcraft.
En fyndnast við þessa auglýsingu hjá Sýn, er að þeir segja:
"Hver slær hendinni á móti því að ávinna sér viðlíka frægð og aðdáun og David Beckham og Eiður Smári Gudjohnsen?"

Athugasemdir (