Opinbert bréf til Vísis
Skrifað miðvikud. 3. maí 2006 - 08:43Ég sendi Vísi opinbert kvörtunarbréf varðandi þennan staðfestingarkóða þeirra sem eitrar fyrir almennu blogg samfélagi.
blog.central.is - Staðfestingarkóði
Sæl verið þið.
Ástæðan fyrir þessu bréfi mínu er þessi staðfestingarkóði sem er tiltölulega nýkominn á central.is bloggkerfið. Sama hvort maður skrifi réttan kóða, þá kemur samt villa. Maður þarf að endurtaka kóðann 2-5x áður en maður nær að setja inn eina litla athugasemd. Það er kraftaverk ef kóðinn er réttur í fyrstu tilraun.
Ástæðan af hverju ég sendi ykkur þessa kvörtun, er sú að vinir mínir eru flest allir skráðir með blogg hjá ykkur, og ef ég, sem vinur þeirra, ætla að senda inn athugasemd á síðuna þeirra, þarf ég að vera í nokkrar mínútur að skrifa athugasemdina, svo ef ég gleymi að afrita athugasemdina og það kemur villa í staðfestingarkóða, þarf ég að skrifa hana aftur og það nennir enginn heilvita maður að gera það.
Ég hef einungis lesið/heyrt neikvæðar athugasemdir um þennan staðfestingarkóða. Ég geri mér hins vegar fyllilega grein fyrir því að þið eruð að reyna að sporna gegn spambottum/hökkurum/o.s.frv., en þetta verður samt sem áður til þess að fólk hættir að nenna að nota kerfið ykkar, og hvert fara ykkar kæru notendur þá? Kannski til samkeppnisaðilans ykkar -- mbl.is?
Með von um snögg og góð viðbrögð.
Kveðja,
Guðjón Jónsson

Athugasemdir (