Deila á Facebook
« Opinbert bréf til Vísis | Aðalsíða | Ágætur fimmtudagur »

Pizzu vesen
Skrifað miðvikud. 3. maí 2006 - 21:14
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég lenti rétt áðan í mesta þrjóskukasti, sem ég hef lent í, og klúðraði þar af leiðandi pizzaveislu.

Mamma bað mig fyrr í kvöld um að panta pizzu fyrir okkur fjölskylduna, þ.e. mig, mömmu og pabba. Pabbi var ekki kominn heim, þannig hún bað mig um að ná í pizzuna. Venjulega biður hún pabba um að gera það, en ég sagðist ætla að gera það.

Ég hringi og panta svona tvennutilboð, eins og við pöntum alltaf. Panta tvær 15" pizzur. Eina með pepperoni, sveppum og jalapeno og hina með pepperoni, skinku og sveppum. Svo segir pizzadaman að pizzan verði tilbúin eftir korter. Ég tek tímann og bíð spenntur eftir pizzunni. Svo kemur pabbi allt í einu heim, og ég bið hann um að sækja pizzuna. Hann neitar, þannig ég neita líka að sækja hana. Ég veit ekki hvað kom yfir mig, en ég var víst að gera eitthvað merkilegra en pabbi.

En núna er allavega pizza uppi á Höfða á nafninu Guðjón Jónsson, sem átti að vera sótt fyrir sirka klukkustund síðan. Vitið þið hvað er gert þegar svona gerist? Fær maður feita sekt eða?

Núna ætla ég allavega að fara út í BV og fá mér að éta, þar sem ég verð víst að borða eitthvað.




Athugasemdir ():