Deila á Facebook
« Pizzu vesen | Aðalsíða | Föstudagurinn - Frábært kvöld »

Ágætur fimmtudagur
Skrifað föstud. 5. maí 2006 - 06:44
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ágætt hjá mér er ekki best, eins og hjá sumum. Ágætt er bara ágætt, á svipuðu stigi og gott. En þessi dagur var bara mjög góður. Svolítið langur, en það þýðir bara að þá er meira til að skrifa um.

Ég byrjaði í morgun á því að vakna kl 8 og rifja smá upp fyrir íslenskupróf, sem átti að hefjast kl 9. Þetta var próf úr Snorra Eddu og málsögu. Mér gekk mjög vel á Snorra Eddu hlutanum, en ég hefði nú átt að fara aðeins betur yfir málsöguna. Snorra Eddu hlutinn gildir 45% en málsögu 55% - svindl! Ég nenni engan veginn að taka þetta í 3ja skiptið. En ég krosslegg bara fingurnar og vona það besta.

Eftir prófið bauð Jökull mér til sín. Hann kokkaði yndislegan aspasrétt, og bauð mér í mat. Ég vil bara segja að ég er ekki vanur að borða aspas, en þetta var bara helvíti gott! Takk æðislega fyrir mig, Jökull.

Aspasrétturinn sem Jökull kokkaði


Svo eftir þessa frábæru máltíð fór ég bara heim og í tölvuna. Gerði mig svo kláran fyrir vinnuna og fór svo í vinnuna kl 6. Andri félagi minn, sem ég átti að vera að vinna með, var veikur, þannig Alexía og Valdís þurftu að skipta vaktinni. Þær höfðu báðar verið að vinna um daginn, þannig þetta var svolítið álag fyrir þær. En þetta reddaðist.

Eftir vinnu fór ég á kaffihús með Jónasi, Grétari og Kella. Jónas sigraði Illuga Jökulsson í hörkuspennandi þætti í Meistaranum, á stöð 2. Jónas var svo góður að sækja mig áður en við fórum á kaffihúsið. Takk kærlega fyrir það, Jónas, og innilega til hamingju með sigurinn. Svo komum við aðeins við heima hjá Kella, þar sem hann og Grétar voru ekki farnir. Þeir voru víst bara að bíða eftir mér. Takk, strákar.

Svo fórum við á kaffihús. Við fórum á bílnum hans Jónasar sem er af gerðinni Toyota Prius. Þetta er víst bíll sem gengur bæði fyrir bensíni og rafhlöðu, þannig meðaleyðslan á þessum bíl er ~6L / 100km, sem er mjög lítið. Hentugt núna þegar bensínið er svona ógeðslega dýrt.

Þegar við komum á Kaffi Vín, var allt troðfullt þar. Það lokaði kl 1 og var klukkan að ganga hálf 1. Við náðum samt borði. Það sem kom mér mest á óvart, var það að stór bjór var á tilboði - 390 kr! Mér fannst það vera gefins, þannig ég og Kelli skelltum okkur á svona dúndurtilboð. Því miður var þetta Heineken, þannig ég gat ekki þambað hann. Kúgaðist hálfpartinn af honum. Heineken er hreinn viðbjóður! En bjór er bjór, þannig ég sætti mig bara við hann. Strákarnir spiluðu póker með sykurmolum. Ég horfði hins vegar bara á. Hef ekki áhuga á því að verða pókerfíkill.

Seinna kom Jökull. Jökull hafði verið í bíói með Óla Black og Baldri á myndinni Inside Man. Jökull sagði að hún væri helvíti góð, þannig ég verð að fara að sjá hana. Hver býður sig fram í bíó? Stuttu seinna, eftir allt pókerspilið og bjórþambið fórum við, þar sem Siggi, nýi eigandinn að staðnum, var að loka. Ég fékk mér samt einn bjór til að taka með mér heim, þar sem þetta var bara of gott tilboð.

Strákarnir á Kaffi Vín í kvöld. Jónas (Meistarinn), Grétar og Kelli.


Við enduðum á því að fara heim til Kella, þar sem hann var einn heima. Strákarnir fóru auðvitað að spila póker en ég horfði bara á sjónvarpið. Ég horfði á auglýsingar með einhverjum undra grænmetisskera og töfralitum í sirka 2 klukkutíma. Mér fannst þetta svo svalt, að ég var gjörsamlega límdur við þetta.

Strákarnir voru orðnir svangir, þannig við ákváðum að skella okkur á Subway. Ég og Jónas fengum okkur 12" skinkubát, Jökull fékk sér 6" bræðing og Grétar fékk sér 6" skinkubát. Ég og Grétar hittum svo Söndru, sem var með okkur í grunnskóla. Hún var með vinkonu sinni sem ég veit ekkert hvað heitir. Köllum hana bara skvísuna.

Svo lenti ég í rosalega fyndnu atviki. Grétar fór og fékk sér, eftir bátinn, súkkulaðihúðaðar Kasjúhnetur. Þá langaði mig líka í, þannig ég fór og fékk mér. Svo þegar ég var að fara að borga, sá ég hár ofan í pokanum mínum. Þetta var í svona hnetubar, þar sem maður afgreiddi sig sjálfur. Ég tók hnetuna með hárinu og henti í ruslið. Svo þegar kom að því að afgreiða mig, sagði ég við gaurinn, sem vildi svo til að hann var ircari undir nickinu R4gg1, að ég vildi fá afslátt, út af því að það var hár í hnetunum mínum. Gaurinn sagði þá bara: "Og hvað með það? Ertu ekki með hár á hausnum?". Er gaurinn steiktur? Ég sagði honum auðvitað að þetta væri snarl, sem færi ofan í magann, og maður vill ekki gleypa hár af einhverjum öðrum! Þetta kostaði í byrjun einhverjar 238 kr. en ég fékk þetta á 187 kr., eða eitthvað. Svaka afsláttur! Hefði ég gengið með þetta lengra, og farið beint í verslunar- eða vakstjórann, hefði ég fengið þetta frítt. Án efa!

En það er mest lítið í fréttum. Kom bara heim áðan og er búinn að vera að grúska eitthvað í tölvunni bara. Ég fer ekki aftur í próf fyrr en á fimmtudaginn næsta, þannig ég hef smá tíma til að læra fyrir það. En ætli ég fari ekki bara að sofa bráðlega. Vinna kl 6 um kvöldið á morgun, þannig ég verð að sofa smá.

En nokkrir hlutir sem ég verð að koma á framfæri:
  • Ég er sokkinn aftur í kókið.
  • Grétar er byrjaður að blogga.
  • Uppfært! Ég er að fara að sofa núna. Klukkan er 09:36.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():