Deila á Facebook
« Ágætur fimmtudagur | Aðalsíða | Laugardagurinn - Stutt og laggott »

Föstudagurinn - Frábært kvöld
Skrifað laugard. 6. maí 2006 - 21:23
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Gærkvöldið var frábært. Þó ég hafi bara einn verið að drekka, þá var þetta algjör snilld.

Ég byrjaði á því að fara að vinna kl 6. Svo eftir vinnu, gerði ég mig til, þar sem Grétar bað mig um að koma á Kaffi Vín. Ég var til í það og fórum við á hans bíl. Ég fékk mér bara bjór og hafði það kózý.

Þegar við komum á Kaffi Vín, hitti ég einhvern gaur sem var með tjékkneska Budweiserinn í glasi. Út frá því hófst löng og skemmtileg umræða um bjórhellingar. Ég hef heyrt að til þess að fá besta bjórinn, þurfi að vera í 7 mínútur að hella honum í glasið. Hann hélt því fram að það væri mun styttra. Það vill nú svo til að pabbi og mamma fóru út til útlanda og þar voru þeir 7 mínútur að hella í glösin. Besti bjórinn.

Svo endaði með því að ég fékk mér tjékkneskan Budweiser. Ég bað barstúlkuna um að hella eins hægt í glasið og hægt var, en hún misskildi eitthvað enskuna mína og tók það sem ég væri að taka tímann á því hversu fljót hún væri að hella í glasið. En þessi bjór var skítsæmilegur, þó ég taki Becks og Tuborg fram yfir.

Svo eftir þetta bjór vesen, ákváðum við að setjast niður. Við settumst þarna og byrjuðum bara að spjalla. Svo stuttu seinna kom Jökull. Við byrjuðum bara að spjalla um allt milli himins og jarðar. Voða gaman. Fólkið sem sat fyrir aftan okkur voru engin annar en Egill í Buttercup, vinir og kærastan hans Sara. Ég fór upp að honum og sagði við hann að ég kannaðist við hann. Þá sagði Vera, sem var þarna með þeim, við mig: "Bara ef þú vissir það ekki, þá er þetta Egill í Buttercup". Hehehe, ég hafði ekki hugmynd. En svo mundi ég að ég hafði séð hann í Séð og Heyrt þegar hann var með Írisi í Buttercup. Ég þekkti þessa Veru ekki neitt, en kynntist henni betur um kvöldið. Kem að því á eftir.

Svo ákváðum við að fara. Solla, vinkona Maju frænku minnar, var að biðja mig um að koma með þeim á Selfoss. En svo hættu þær við það, út af því að Solla lenti í einhverju drama með fyrrverandi kærasta sinn. Við ákváðum þá bara að fara yfir á Sólon, út af því að Ívar, Gummi og Bjarni voru þar. Við byrjuðum að rölta en stuttu seinna komu Arna og kærasti hennar Jónas, systir hennar Elín og Guðrún vinkona hennar. Svo voru þau svo góð að skutla mér á Sólon. Arna gaf mér meira að segja framsætið. Takk, Arna mín.

Svo þegar við komum fyrir framan Sólon, kvaddi ég Örnu og þau og fór svo út úr bílnum. Grétar og Jökull löbbuðu en komu á sama tíma og ég. Svo hittum við Dagný og Fanný. Þær voru mjög hressar. Siggi, dyravörður á Sólon, hleypti mér inn. Svo fórum við og hittum Ívar, Gumma og Bjarna. Djöfull voru þeir hressir. Ívar og Bjarni voru að drekka, en Gummi var edrú á bíl. Ívar var samt ekkert að djamma, bara chilla. Hann var að fara að vinna kl 8 í morgun. Svo vorum við bara þarna syngjandi hástöfum og höfðum rosalega gaman.

Svo seinna um kvöldið sé ég Aron, sálfræðikennarann minn, fara niður á klósettið. Strákarnir segja að þetta hafi ekki verið hann, en ég var alveg viss um að þetta væri hann. Ég elti hann þá og komst að því að þetta hefði verið hann. Svo spjölluðum við bara smá og ég fór aftur upp til strákanna. Svo seinna fór ég upp á dansgólfið. Dansaði þar og komu Grétar og Jökull stuttu eftir það, en Gummi, Ívar og Bjarni komu seinna upp og kvöddu okkur. Svo vorum við bara dansandi þarna. Svo fóru Grétar og Jökull að sækja bílana sína, en komu svo ekkert aftur. Þannig ég var bara einn þarna.

Ég fór þá til Arons og vina hans. Þeir sátu bara þarna og voru rólegir. Mjög gaman að hitta og spjalla við svona hressa stráka. Þeir hétu Gunni og Hjörtur. Þeir eru á Félagsfræðibraut í Háskólanum og spjölluðum við um margt og mikið.

Eygló skvísa var að vinna þarna. Þetta var fyrsta vaktin hennar, og held ég bara að hana hafi líkað þetta ágætlega. Ég man að ég pantaði 2-3 bjóra hjá henni. Ég bað hana um að hringja í mig um leið og hún færi heim, en hún hringdi aldrei. En það er ekkert mál!

Svo ákváðum við Aron og vinir hans að fara eitthvað annað. Það var búið að loka á Sólon, þannig við kíktum á Hressó, en það var búið að loka, þannig við kíktum bara á Pravda. Ég sé sko ekki eftir því að hafa farið þangað! Ég hitti Veru og Söru aftur, sem ég hitti á Kaffi Vín. Ég var bara með þeim það sem eftir var af kvöldinu. Við fórum á Gaukinn og vorum bara þar. Vera er að vinna á barnum á Gauknum, þannig hún splæsti á mig Opal skoti. Takk, Vera. Svo fórum við bara að dansa og svona.

Ég sótti um vinnu á Gauknum sem dyravörður. Vera sagði mér að sækja um, og benti mér á yfirdyravörðinn sem lét mig skrifa undir umsókn. Svo eftir það, fórum við að dansa meira og kíktum svo á Amsterdam. Þeir voru búnir að loka, en Vera þekkti dyravörðinn og vildi hann hleypa henni inn, en ekki mér. Þá fór hún yfir á Gaukinn og sótti Sigga yfirdyravörð og hleypti hann mér inn líka. Við vorum bara í smá stund þarna, en fórum svo fljótlega út.

Svo skutlaði vinur Veru mér bara heim. Takk fyrir kvöldið, Vera.

En núna er ég bara að fara í bíó á Mission Impossible 3. Það verður spennandi að sjá hvernig hún verður. Svo fer maður bara á kaffihús eða eitthvað rólegt. Ég ætla að vera á bíl, vegna of mikillar drykkju í gær. Það er ágætt.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():