Deila á Facebook
« Laugardagurinn - Stutt og laggott | Aðalsíða | "Hard to get" ? »

Subway
Skrifað mánud. 8. maí 2006 - 04:33
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í kvöld fór ég með Grétari, Jökli og Helga á kaffihúsa chill. Við lögðum af stað klukkan 1, út af því að ég var svo lengi að vinna.

Svo þegar við komum niður í bæ, ákváðum við að athuga hvort það væri opið á Kaffi Vín, en það var lokað. Þannig við ákváðum að rölta niður laugarveginn en það var allt lokað. Enduðum á því að labba alla leið niður á Ingólfstorg, bara til þess að finna einhvern stað. Við fundum ekkert. En þess í stað hittum við helling af rugluðu liði. Við nenntum ekki þessu rugli og fórum aftur að bílnum og ætluðum bara á Subway að fá okkur að borða.

Þegar við komum á Subway á Ártúni var gamla leiðinlega konan, með kínverska tattooið á höndinni, að vinna. Ég fékk mér lítinn bát mánaðarins með káli, lauk, ostasósu og salt og pipar. Djöfull er ostasósan góð. Ég hef alltaf fengið mér BBQ sósu, en ostasósan slær hana algjörlega út. Þið verðið að smakka hana! Helgi benti okkur Jökli á hana og getum við vægast sagt að okkur hafi líkað hún! Svo settumst við þarna niður og hámuðum í okkur. Svo fórum við bara að spjalla og svona. Ég ætlaði svo að fá mér annan, en þá var búið að loka.

Hvað er málið með þessa búllu? Í 70% tilfella sem ég fer þarna, er lokað. Alltaf einhver afsökun. "Eigum eftir að skera grænmeti", "eigum eftir að baka brauð", o.s.frv. Hafið þið lent í þessu? Þetta er frekar pirrandi. Er ekki hægt að baka meira brauð áður en hin verða búin? Ekki sniðugt að byrja að baka meira brauð um leið og hin brauðin klárast. Og hvernig væri það að byrja að skera meira álegg/grænmeti áður en hitt klárast. Think, god damn it!

Þó þau byrji að baka nokkur brauð til þess að byrja með, og það kemur enginn, þá eru þau í minna tapi heldur en ef fólk kemur og það er lokað. Þá missa þau öll viðskiptin, sem er mun meira virði heldur en nokkur brauð!

Þegar það var auglýst eftir starfsfólki á Subway einhverntíman, stóð í auglýsingunni: "Hressleikinn á Subway er alltaf í fyrirrúmi, bæði hjá starfsmönnum og í álegginu okkar". Ég labbaði þarna inn og sá fúlustu og bitrustu manneskju sem ég hef séð lengi. Það var þessi tattooveraði fimmtugi kvenmaður, sem er alltaf fúl og pirruð í skapinu. Einnig er annað starfsfólk þarna sem er aldrei hresst og alltaf fúlt og pirrað. Ég skil alveg ágætlega að það sé leiðinlegt að vinna svona næturvinnu á Subway, en ekki vera að auglýsa að hressleikinn sé í fyrirrúmi, þegar hann er það ekki!

Og elskan, það er ekki okkur að kenna að þú sért í ömurlegri vinnu á ömurlegum launum. Ekki láta það bitna á okkur viðskiptavinunum. Við erum bara svöng og viljum fá að éta. Þar kemur þú inn í myndina.

En já, þetta er bara illa skipulagður staður. Næst þegar þetta gerist, ætla ég að senda Subway bréf. Engin spurning. Það gengur ekki lengur þetta helvítis skipulagsleysi þarna.

Það er hins vegar starfsfólk þarna sem er alltaf hresst, og eru það helst Eva og Vilborg. Þær eru alltaf hressar og kátar. Klikkar ekki.

Ég varð bara að röfla smá.




Athugasemdir ():