Afmælis spegúlering ofl.
Skrifað mánud. 7. nóvember 2005 - 21:02Jamm, ég og Grétar erum ákveðnir með að halda afmælin okkar saman.
Grétar verður tvítugur 16. nóvember og ég verð tvítugur 13. desember. Við vorum að spá í því að hafa mat og grilla eða eitthvað og svo halda partý eftir á, á einhverjum stað. Samt ekkert ákveðið ennþá.
Allavega, ég vaknaði í morgun og dreif mig í skólann kl 8. Auðvitað var próf í íslensku málssögu sem ég hafði gleymt og skítféll á prófinu. Ég spurði kennarann, áður en prófið byrjaði, hvort maður mætti fara eftir prófið og hún svaraði játandi. Svo tíu mínútum eftir að hún afhenti prófið, skilaði ég prófinu. Hún sagði: "Þú færð ekki að fara. Sestu niður og farðu að lesa málssöguna eins og þú áttir að gera!" og var frekar reið. Ég gerði það og furðaði mig á svikum kennarans.
Fór svo heim kl 12 og lagði mig til 2, fór svo aftur í skólann. Eftir það fóru ég og Grétar að útrétta. Kíktum á stað og vorum að athuga hvort við gætum leigt salinn. Svo eftir það fórum við á KFC og fengum okkur að borða. Ég splæsti. Reyndar skuldaði ég Grétari þannig ég borgaði skuldina. JÁ ÉG BORGA MÍNAR SKULDIR! Annað en sumir, já takið það til ykkar!
Núna er ég bara að vefast eins og alltaf. En maður fær nú borgað fyrir þetta. Ég er alveg að gefast upp á þessu. Ég er kominn með annað vefsíðu verkefni þannig það verður mikið að gera hjá mér næstu daga. Ekki eins og það sé ekki nóg að gera hjá mér núna.
Allavega, ég er að sjóða fram boðslista fyrir afmælið mitt og Grétar er að gera það sama. Verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu. Boðslistinn verður birtur á allra næstu dögum.
Stay tuned!
Ég ætla að fara að vinna, heyrumst.

Athugasemdir (