Lærdómur ofl.
Skrifað miðvikud. 10. maí 2006 - 00:51Eins og þið vitið flest öll, þá er ég á fullu í prófum. Ég á tvö próf eftir, og eru þau á fimmtudag og föstudag. Ég er búinn að nýta mér Þjóðarbókhlöðuna mjög vel. Verst bara hvað maður verður dasaður, dofinn og þreyttur eftir langan lestur. Gott er að taka sér pásur á klukkutímafresti, fara og fá sér kaffi, sígó og smá frískt loft. Það kemur fyrir að maður dotti yfir bókunum en þá er um að gera að fara og fá sér hressingu og hressa sig við.
Í gær fórum við Jökull og Grétar á Þjóðarbókhlöðuna að læra. Svo fórum við Jökull bara heim til mín og horfðum á Edison. Það eru fullt af góðum leikurum í þessari mynd, þ.á.m. Morgan Freeman, Kevin Spacey, LL Cool J og Justin Timberlake. Þetta er fyrsta myndin hjá Timberlake, og leikur hann ágætlega, þó það vanti alla reynslu í hann. En það kemur vonandi. En þessi mynd er ekki góð, í raun bara hræðileg. Það vantar alla spennu í hana og mæli ég alls ekki með henni. Frábærir leikarar í vonlausri mynd. Ég gef henni 2 stjörnur af 5.
En í dag fór ég á Þjóðarbókhlöðuna með Jökli. Það var bara ágætt. Ég er hálfnaður með námsefnið. Ég klára þetta allt á morgun, þar sem ég er að fara í prófið á fimmtudaginn. Ég bjóst við því að geta lært fyrir bæði sögu og sálfræði á þessum nokkru dögum, en svo virðist sem ég muni bara geta lært fyrir söguprófið, þar sem námsefnið er svo mikið.
Verst að allar háskólagellurnar eru alltaf að trufla okkur með því að labba stanslaust fram hjá okkur.
70% af kvenfólkinu þarna er flott. Við förum stundum í leikinn "Myndiru eða myndiru ekki?". Algjör snilld. 
En allavega, ekki margt að skrifa um, enda ekki margt að gerast. En núna næstu helgi verður fagnað próflokunum. Planað er fyllerí fimmtudaginn, föstudaginn, laugardaginn og sunnudaginn. Ó já, það verður sko tekið á því núna eftir prófin. Vinnan byrjar ekki fyrr en 1. júní, þannig maður er í fríi alveg þangað til. Ahhh!
Það er bara að standa sig í að læra þangað til, svo maður nái nú þessum fögum, og þurfi ekki að taka þetta aftur. 
En um daginn fékk ég símareikning frá Og Vodafone. Mér leist ágætlega á þennan símareikning, þangað til ég kom að SMS liðnum. Ég fékk næstum því hjartaáfall. En svo sá ég að það hefði verið dregið frá út af GSM vinunum. Ég elska þessa "GSM vina" þjónustu!
Ég sendi nefnilega SMS fyrir 15.772 kr. en 13.204 kr. voru dregnar frá, út af GSM vinunum.
Það er mynd af þessu hérna fyrir neðan.

En núna er ég bara að fara að sofa. Segjum þetta gott í bili. Sé ykkur elskurnar.
Í gær fórum við Jökull og Grétar á Þjóðarbókhlöðuna að læra. Svo fórum við Jökull bara heim til mín og horfðum á Edison. Það eru fullt af góðum leikurum í þessari mynd, þ.á.m. Morgan Freeman, Kevin Spacey, LL Cool J og Justin Timberlake. Þetta er fyrsta myndin hjá Timberlake, og leikur hann ágætlega, þó það vanti alla reynslu í hann. En það kemur vonandi. En þessi mynd er ekki góð, í raun bara hræðileg. Það vantar alla spennu í hana og mæli ég alls ekki með henni. Frábærir leikarar í vonlausri mynd. Ég gef henni 2 stjörnur af 5.
En í dag fór ég á Þjóðarbókhlöðuna með Jökli. Það var bara ágætt. Ég er hálfnaður með námsefnið. Ég klára þetta allt á morgun, þar sem ég er að fara í prófið á fimmtudaginn. Ég bjóst við því að geta lært fyrir bæði sögu og sálfræði á þessum nokkru dögum, en svo virðist sem ég muni bara geta lært fyrir söguprófið, þar sem námsefnið er svo mikið.
Verst að allar háskólagellurnar eru alltaf að trufla okkur með því að labba stanslaust fram hjá okkur.
En allavega, ekki margt að skrifa um, enda ekki margt að gerast. En núna næstu helgi verður fagnað próflokunum. Planað er fyllerí fimmtudaginn, föstudaginn, laugardaginn og sunnudaginn. Ó já, það verður sko tekið á því núna eftir prófin. Vinnan byrjar ekki fyrr en 1. júní, þannig maður er í fríi alveg þangað til. Ahhh!
En um daginn fékk ég símareikning frá Og Vodafone. Mér leist ágætlega á þennan símareikning, þangað til ég kom að SMS liðnum. Ég fékk næstum því hjartaáfall. En svo sá ég að það hefði verið dregið frá út af GSM vinunum. Ég elska þessa "GSM vina" þjónustu!

Símareikningurinn minn fyrir apríl

Athugasemdir (