Próflok - Mikið var!
Skrifað föstud. 12. maí 2006 - 16:25Ég fann mig knúinn til þess að henda einhverju hingað inn, þar sem ég er búinn í prófunum.
Ég tók síðasta prófið áðan og var það Sálfræði. Ég var mjög stressaður áður en prófið hafðist, en það var óþarfi, þar sem þetta var frekar auðvelt og sanngjarnt próf. Svo þegar ég var búinn í prófinu, fór ég fram og fékk að vita frá þýskukennaranum mínum að ég hefði náð þýskunni. Frábært!
En síðast liðnu daga er ég ekkert búinn að gera nema að læra undir próf. Loksins er þetta helvíti búið, maður kominn í hálfgert "sumarfrí" í nokkra daga og getur maður núna farið og slett aðeins úr klaufunum. Mér sýnist allt stefna í það að ég fari niður í bæ í kvöld, til þess að fagna próflokunum. En ákveðnir aðilar vilja bara vera heima, drekka bjór og spila póker.
Já, drengir mínir, þið eruð orðnir spilafíklar! 
Ég hef ekkert til að skrifa um, þar sem hausinn á mér er ennþá að jafna sig og ná áttum eftir allt námið í kringum þessi próf. En allavega, núna þegar ég er kominn í hálfgert sumarfrí, þá mun ég sennilega hanna nýtt útlit á þessa blessuðu síðu. Svo byrja ég á fullu að vinna 1. júní.
En eftir prófið fór ég í Skífuna og keypti nýja diskinn með Tool. Einungis 1.790 kr. Hann heitir 10,000 Days og líst mér bara helvíti vel á hann enn sem komið er. Ég er voða lítið búinn að hlusta á hann, en hann fer beint í græjurnar strax á eftir.
En það hefur verið svolítið um árásir af svokölluðum spambottum hér á síðunni minni. En ég er búinn að laga það, þannig þeir angra mig ekki aftur í bráð. Ég gerði það þannig að nú eru einungis íslenskum IP-netum leyft að skrifa athugasemdir. Þannig ef einhverjum í útlöndum langar að skrifa athugasemd, getur hann það ekki. Greyið Múhameð.
En allavega, ég ætla að fara að gera eitthvað. Segjum þetta ágætt í bili.
Uppfært 12.05.06 - 21:34
Jæja, þetta "IP-net" dæmi var ekki alveg að virka, þar sem það er víst íslenskt fólk úti í útlöndum sem skoðar síðuna mína.
Þannig núna er komið þannig að þið reiknið eitt lítið reikningsdæmi (tólf plús einn) til þess að geta skrifað á síðuna. Þetta reikningsdæmi breytist aldrei, þannig þetta er enginn staðfestingarkóði. Þetta er bara eitt saklaust dæmi svo spambottarnir geti ekki skrifað á síðuna.
En ef þið skrifið einu sinni á síðuna, þá festist svarið við reikningsdæminu inni, ásamt nafninu, netfanginu og slóðinni á heimasíðuna ykkar. Þannig þið þurfið ekki alltaf að vera að slá inn sömu upplýsingarnar aftur og aftur. Vonandi veldur þetta ykkur ekki óþægindum. 

Athugasemdir (