Deila á Facebook
« 10 lög af handahófi | Aðalsíða | Laugardagurinn - Ekkert bæjarstúss »

Föstudagurinn - Vesen?
Skrifað laugard. 13. maí 2006 - 22:48
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í gærkvöldi fór maður auðvitað í bæinn, til að fagna próflokum. Það gerðist ýmislegt.

Klukkan 2 um nótt fór ég að taka mig til. Þá voru Grétar, Kelli og Hildur búin að vera heima hjá Jökli allt kvöldið að spila póker. Ég mætti kl 2 heim til Jökuls, og þá voru þau ennþá þarna.

Strax og ég kom byrjaði Kelli á því að biðja mig um að koma inn á bað í blacklightið, þar sem hann var allur hvítur í framan. Þetta var víst eitthvað duft sem var á spilapeningunum. Þetta sást bara í blacklight. Algjör snilld.

Svo fóru Kelli og Hildur bara, og ég, Grétar og Jökull vorum bara eftir. Jökull var edrú, þar sem hann er víst hættur að drekka. Við vorum bara þarna að spjalla, og ég ákvað að heyra í Danna hvort hann væri á bíl. Hann var auðvitað á bíl og kom og sótti okkur. Takk, Danni minn.

Þegar Danni kom, kvöddum við Jökul og þökkuðum honum fyrir kvöldið. Svo fórum við út í bílinn hjá Danna. Kamil var þar, og strax og ég settist inn byrjaði hann að tala við mig um hversu leiðinlegt honum finndist að ég hafi sagt fyrir einu ári að ég ætlaði að lemja hann. Svo hélt hann líka að ég hefði verið að reyna við Kristínu, kærustuna hans. Þetta er bara bull og man ég ekkert eftir því að hafa sagst ætla að lemja einn né neinn, þar sem ég lem ekki vini mína. Ég var heldur aldrei að reyna við Kristínu. Svo sættumst við bara á staðnum, þar sem Grétar kom inn í þetta og sannfærði Kamil um að ég myndi aldrei gera neitt eins og að lemja vini mína eða reyna við kærustur þeirra. Þó ég hafi gert það einu sinni fyrir mörgum árum, þá lærði ég af mistökunum, og geri það aldrei aftur! Sem sagt bara drama drama. En ég og Kamil erum orðnir sáttir, held ég.

Svo eftir þessar massaumræður spurði Danni hvert við vildum fara. Við sögðum bara á Gaukinn. Svo skutlar hann okkur fyrir utan Gaukinn. Ég, Grétar og Kamil röltum áleiðis inn, en svo snýr Kamil allt í einu við og fer með Danna aftur, án þess að láta okkur vita. Danni var að fara að skutlast suður í Hafnarfjörð og skutla einhverjum stelpum.

Ég og Grétar fórum þá bara inn á Gaukinn. Ég fór á barinn og hitti Veru, en Grétar fór bara beint á dansgólfið. Vera var svo upptekin, þar sem það var svo mikið að gera, þannig ég ákvað að hætta að trufla hana, pantaði einn bjór hjá henni og fór bara að dansa. Svo eftir mikinn dans og mikla drykkju fórum við yfir á Sólon.

Þegar við komum fyrir utan Sólon, er verið að meina einhverjum svertingja um inngöngu. Svo stuttu seinna sé ég tvo dyraverði bera hann út. Hann var víst að streitast á móti eitthvað, þannig stuttu seinna var hann kominn í jörðina. Ég held að ástæðan af hverju hann mátti ekki fara inn, var út af því að hann var í leðurbuxum. Gaurinn var náttúrulega ekkert allt of sáttur við það og stalst inn, en dyraverðirnir fundu hann og hentu honum út.

Svo eftir þetta rosa dæmi, vorum við Gulli og Grétar bara að spjalla við Sigga og Matta. Stuttu seinna hendir Matti einhverjum gaur út, og gaurinn byrjar að rífa kjaft á fullu fyrir utan. Svo kemur félagi hans og reynir að kýla Matta. Ég man ekki alveg hvernig þetta var, en allavega Grétar tók gaurinn niður sem reyndi að kýla Matta, og hélt honum. Ég beygði mig niður og sagði honum að hann ætti ekki að vera að reyna að kýla félaga minn. Þá tekur gaurinn sig til og kýlir mig feitast í andlitið. Ég og Grétar byrjum þá að kýla hann á móti. Svo vorum við Grétar dregnir í burtu. Ég man samt ekki af hverjum. Meira ruglið.

ER EKKI HÆGT AÐ SKEMMTA SÉR ÁN ÞESS AÐ VERA KÝLDUR EÐA LENDA Í VESENI? Ég var sko ekki að leita mér að veseni, en vesenið leitaði mig svo sannarlega uppi!

Svo reyndum við að fara inn á Sólon. Siggi sagði að ég hefði verið að slást, þannig ég mætti ekki fara inn. Ég útskýrði þá fyrir honum að sjálfsvörn væri lögleg, og hleypti hann þá mér einum inn. Ég bað Matta um að hleypa Grétari inn og gerði hann það. Takk, Matti og Siggi.

Við fórum inn á Sólon, og þar var Eygló. Hún var að vinna og var að fara í mat þegar við komum. Ég pantaði einn bjór hjá henni og svo fórum við bara upp að dansa. Eftir mikinn dans fórum við bara aftur á Gaukinn.

Þegar við komum á Gaukinn, fórum við bara upp á dansgólfið. Ingvar, Fannar og Bjarni voru þar. Svo hitti ég annan Fannar, sem kallaði sig Fanyodojo á ircinu einu sinni. Hann sagði að ég hefði breyst svakalega síðan í Iðnskólanum. Að ég væri ekki lengur nördalegur. Það er alveg satt. Svo fórum við bara að dansa. Ég bað svo Danna um að sækja okkur og hringdi hann strax og hann var kominn. Dabbi, vinur Grétars, sem er dyravörður á Gauknum, fékk far, út af því að hann bjargaði Grétari um daginn þegar hann lenti í slagsmálum. Grétar launaði honum greiðann með því að bjóða honum far.

Við fórum að sjálfsögðu á Subway. Ég fékk mér lítinn bát mánaðarins, Skinkubát, í Oregano brauði. Mmmm, það var gott! Svo fór ég og keypti mér kók í dós. Svo fékk ég mér annan bát!

Við skutluðum svo Grétari heim og svo var mér skutlað heim. Dabbi átti heima í Breiðholtinu eins og Danni, þannig þeir fóru bara samferða eftir að þeir skutluðu mér.

Þegar ég kom inn, drakk ég 5 vatnsglös og rotaðist svo inni í rúmi. En takk fyrir kvöldið, Grétar, Jökull, Danni, Kamil, Kelli og Hildur.

Svo núna áðan klukkan 10 var ég að vakna, og djöfull er ég þunnur! Þetta ætti að vera ólöglegt! En núna er maður bara að fara að djamma aftur. Vonandi réttist maður af við einn afréttara. Ég er að fara í fimmtugsafmæli hjá mömmu Grétars. Ætli maður verði ekki bara á kæjanum.

En já, núna ætla ég bara að skella mér í sturtu og svona. Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():