Laugardagurinn - Ekkert bæjarstúss
Skrifað mánud. 15. maí 2006 - 04:02Í gær var voða fátt gert. Kíkti í fimmtugsafmæli og svo bara til Jökuls.
Ég var á leið í fimmtugsafmæli til mömmu Grétars. Tók mig til og fór þangað. Það var ágætt, nema meðalaldurinn þarna voru 40 ár. Ég og Grétar þömbuðum bara bjór og gerðum gott úr þessu.
Svo þegar það var liðið svolítið á kvöldið fórum við og sóttum hundinn hans Grétars úr pössun. Svo löbbuðum við bara heim til hans aftur. Fengum okkur svo meira að drekka og ákváðum að kíkja til Jökuls, þar sem Kelli, Hildur, Danni og Óli Black voru þarna.
Við löbbuðum til Jökuls og strax og við komum, var tekið vel á móti okkur. Seinna fóru Danni og Óli, en ég, Jökull, Hildur, Kelli og Grétar vorum bara eftir. Ég, Kelli, Hildur og Grétar fórum í leikinn "Steinn, skæri, blað". Það virkaði þannig að þeir sem unnu máttu slá þá sem töpuðu með tveim puttum á höndina. Það endaði með því að það sprakk æð hjá Hildi og hún og Kelli hættu. Ég og Grétar héldum áfram þangað til við gátum ekki meira. Við erum svo þrjóskir.
Svo man ég að ég skaut mig með loftbyssu. Svo fórum við í kraftlyftingakeppni og eitthvað, og það endaði með því að ég varð svo þreyttur að ég fór bara heim að sofa. Áreynsla + áfengi = ekki góð blanda. En auðvitað vann Grétar keppnina, enda er hann ekkert lítið sterkur þessi drengur.

Ég vaknaði svo núna í kvöld kl 7. Ég var ekkert þunnur!
Ég gerðist svo gáfaður að taka eina Ibufen töflu áður en ég byrjaði að drekka, þannig allt vatnið var bundið í líkamanum. Þegar kvöldmaturinn var kominn á borðið, voru svínakótilettur í BBQ sósu, mjög gott. Ég er ekki búinn að gera neitt nema bara láta mér leiðast. Var að enda við að horfa á Knockaround Guys, sem er snilldar mynd! Gef henni 4 stjórnar af 5. Vin Diesel er of svalur. 
En allavega, núna fer ég bara að sofa bráðlega. Voða lítið að gerast.
Ég var á leið í fimmtugsafmæli til mömmu Grétars. Tók mig til og fór þangað. Það var ágætt, nema meðalaldurinn þarna voru 40 ár. Ég og Grétar þömbuðum bara bjór og gerðum gott úr þessu.
Svo þegar það var liðið svolítið á kvöldið fórum við og sóttum hundinn hans Grétars úr pössun. Svo löbbuðum við bara heim til hans aftur. Fengum okkur svo meira að drekka og ákváðum að kíkja til Jökuls, þar sem Kelli, Hildur, Danni og Óli Black voru þarna.
Við löbbuðum til Jökuls og strax og við komum, var tekið vel á móti okkur. Seinna fóru Danni og Óli, en ég, Jökull, Hildur, Kelli og Grétar vorum bara eftir. Ég, Kelli, Hildur og Grétar fórum í leikinn "Steinn, skæri, blað". Það virkaði þannig að þeir sem unnu máttu slá þá sem töpuðu með tveim puttum á höndina. Það endaði með því að það sprakk æð hjá Hildi og hún og Kelli hættu. Ég og Grétar héldum áfram þangað til við gátum ekki meira. Við erum svo þrjóskir.
Svo man ég að ég skaut mig með loftbyssu. Svo fórum við í kraftlyftingakeppni og eitthvað, og það endaði með því að ég varð svo þreyttur að ég fór bara heim að sofa. Áreynsla + áfengi = ekki góð blanda. En auðvitað vann Grétar keppnina, enda er hann ekkert lítið sterkur þessi drengur.

Farið eftir loftbyssuna

Athugasemdir (