Deila á Facebook
« Sama varan - sitthvor stærðin? | Aðalsíða | Kvöldið - Bíó ofl. »

Bösted! - Prófleysi eða hvað?
Skrifað miðvikud. 17. maí 2006 - 14:07
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Alveg elska ég það þegar eitthvað kemur upp á peningalega séð, og ég þarf að taka helling af aukavöktum í vinnunni bara til þess að eiga fyrir því.

En það er nú þannig að ég var tekinn af löggunni aftur núna áðan. Ég var á leiðinni á Esso smurstöðina í Kópavogi þegar löggan leggur hliðiná mér á ljósunum á höfðanum. Ég var með tónlistina í botni og algjörlega í mínum eigin heimi þegar ég var að keyra. Það endar með því að löggan skrúfar niður rúðuna sína og bankar á gluggann hjá mér.

Ég lækka í tónlistinni og skrúfa niður gluggann hjá mér. Ég gerði mér ekki grein fyrir því að þeir væru að stoppa mig fyrir ofhraðan akstur. Ég hélt þeir væru bara með einhverja athugasemd út á ljósabúnaðinn minn eða eitthvað. Þeir biðja mig um að rétta þeim ökuskírteinið mitt og biðja mig svo um að fara einhverstaðar þar sem það er engin umferð. Ég hlýði því, keyri inn hjá Tómstundahúsinu, drep á bílnum mínum og fer yfir í bílinn þeirra. Þeir voru voða kurteisir og allt. Þeir sýna mér á hvaða hraða ég var mældur. Ég var mældur á 112 km hraða þar sem var 60. "Brennt barn forðast eldinn". Greinilega ekki ég.

En þrátt fyrir þetta rugl, þá þýðir ekkert að erfa það liðna. Það er bara að passa sig betur næst. Ég er samt svolítið hræddur um að missa prófið í þetta skiptið, þar sem ég var tekinn á svipuðum hraða fyrir stuttu. Þetta eru allavega 4 punktar og 40.000 kall í sekt. Æðislegt! Ég er samt mjög feginn að ég hafi ekki verið að keyra 3 km hraðar, þar sem þá eftir að skekkjumörkin hefðu verið dregin frá, hefði ég verið á 111, og það hefði þýtt 50.000 kr. sekt og 1 mánaðar svipting á staðnum.

En ég fór aðeins að spá í því af hverju þeir tóku mig. Það er bara staðreynd að ef löggan sér sportbíl og hann er að keyra of hratt, þá stoppar hún hann. Ég var að keyra hliðiná sendivörubíl sem var af gerðinni Renault Traffic. Við vorum að keyra svipað hratt, og tekur hann svo beygju út á Miklubrautina, en ég hélt áfram á ljósunum. Auðvitað tók löggan mig, þar sem ég var á sportbíl. Hefði ég verið á einhverri druslu, hefði löggan örugglega ekki gert neitt. Svona er þetta bara. Sportbílar eru heitasta böstið hjá löggunni.

Ég viðurkenni samt hins vegar brot mitt, þó ég hafi ekki gert mér fyllilega grein fyrir því að ég væri á svona miklum hraða. Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki að reyna að afsaka mig neitt. Ég er bara að skrifa út frá mínu sjónarhorni.

Hvað segiði, ætti maður að fá sér Yaris/Aygo?




Athugasemdir ():