Deila á Facebook
« Afmælis spegúlering ofl. | Aðalsíða | Dagurinn í dag »

Gærdagurinn
Skrifað miðvikud. 9. nóvember 2005 - 08:57
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Svo mikið að gera í gær að ég náði ekki að blogga. Allavega, ég byrjaði á því að sofa aðeins út og vaknaði kl 11 og fór svo í skólann.

Hvað er málið með umferðarljósin hérna uppi á Gullinbrú?! Þau eru í einhverjar 3 helvítis sekúndur og kemur oft fyrir að maður þurfi að fara yfir á rauðu bara til þess að koma ekki of seint í skólann. Ég er samt almennt ekki vanur að fara yfir á rauðu. Bara þarna út af þessum heimsku ljósum.

En eftir skóla, fór ég í kór. Svo fór ég með Grétari á KFC. Eftir það fórum við á Players og ætluðum að athuga með að fá að leigja salinn fyrir afmælið okkar, en nei nei, eiganda djöfullinn var ekki við. Fyrst er sagt við okkur að hann væri við eftir 12 og svo komum við kl ~7 og þá er hann ekki heldur við. Svo fórum við í Bónus Video og fengum okkur risa bragðaref. Ég leigði myndina The Hitchhikers Guide To The Galaxy en ég á eftir að horfa á hana. Eftir það fór ég bara heim að vinna.

Það var svolítið fyndið sem gerðist í gær. Ég tók svona "þekkiru mig?" próf hjá fyrrverandi kærustunni minni, Huldu, og ég skoraði 100. Ég svaraði sem sagt öllu réttu. Og hún er alltaf að segja að ég þekki sig ekki. Hehe. I sure proved her wrong.

Ég fór kl 3 að sofa í gær og þurfti að vakna núna kl 8 áðan til að fara með bílinn í hjólastillingu. Ég vissi ekki að þetta tæki svona rosalegan tíma þar sem ég þurfti að skilja bílinn eftir og má sækja hann eftir 1-2 tíma. Og ætli þetta eigi ekki eftir að kosta morðfjár þar sem vinna á verkstæðum er ekki ódýr. Algjört rugl.

Núna er ég bara að fara aftur að sofa, þar sem ég er drulluþreyttur eftir að hafa farið sl. nætur seint að sofa.

En já, leikhúsið er í kvöld kl 8. Er að fara með krökkunum sem eru með mér í Félagsfræði á leikritið Brim. Það verður spennandi að sjá hvort að leikhús standi ennþá fyrir sínu eða hvort að þetta sé algjör þvæla.

Mig langar að benda ykkur á grein sem ég fann á netinu. Helvíti góða grein varðandi þetta feminista mál með launamismun karla og kvenna. Þetta er algjör snilld. Lesið þetta hér.

Mig langar að koma með smá gátu fyrir ykkur.
Hvað getiði raðað 5 manneskjum í 5 stóla á margan hátt? Endilega spreytið ykkur. Ég kem svo með svarið í næstu bloggfærslu.




Athugasemdir ():