Silvía Nótt - Not a fan
Skrifað fimmtud. 18. maí 2006 - 03:22Í byrjun fannst mér þessi karakter allt í lagi. Ég gat alveg horft á þættina hennar og hlegið að þeim. En núna er þetta bara komið út í rugl. Þessi manneskja er víst voða róleg þegar hún er Ágústa, en karakterinn hennar, Silvía er náttúrulega löngu búin að fara yfir strikið, og það ekki einu sinni!
Núna um daginn hitti hún finnsku hljómsveitina, Lordi í Aþenu. Hún gekk það langt að halda fyrir nefið þegar þeir löbbuðu fram hjá henni og sagði að þetta hefði verið í fyrsta skipti sem fallegasta kona veraldar hefði hitt ljótasta fólk í heimi. Þetta er náttúrulega einum of. Hún er ekki fallegasta kona veraldar, til að byrja með, og svona segir maður ekki um fólk!
Svo eru helstu stuðningsmenn hennar búnir að gefast upp á henni. Segja hana búna að ganga yfir strikið og eru hætt að styðja hana yfir höfuð. Ég er sammála þeim, þó ég hafi nú aldrei stutt Silvíu neitt mikið. Ég hef hins vegar misst allt álit á henni.
Einnig heyrði ég hana í útvarpinu í dag segja "hálfviti", "fuck you" og ýmis önnur orð sem ættu ekki að vera sögð í opinberum fjölmiðlum. Kannski vegna þess að börn gætu heyrt til, og svo hæfir þetta ekki henni litlu Silvíu okkar.
Alveg með ólíkindum hvernig hún hagar sér stundum. Er ekki bara þessi "frægð" stigin henni of mikið til höfuðs? Kannski er hún komin það langt inn í karakterinn að hún sé í raun og veru farin að halda að hún sé best, flottust og fallegust.
Ég vona bara að hún tapi í Eurovision forkeppninni á morgun. Það vonandi gefur henni smá högg og hún fatti að hún sé ekki best, flottust og fallegust. Það væri ágætt, þar sem hún er farin að verða þjóð okkar til skammar.
Þetta byrjaði ágætlega hjá henni, en nú er komið nóg.

Athugasemdir (