Deila á Facebook
« Silvía Nótt - Not a fan | Aðalsíða | Fimmtudagurinn og föstudagurinn »

Áhugi = hössl?
Skrifað föstud. 19. maí 2006 - 04:04
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég ákvað að skrifa smá pælingu út frá umræðu sem átti sér stað núna í kvöld. Þetta er aðallega um ranghugmyndir stelpna um að maður sé að reyna við þær, þegar maður er bara að kynnast þeim og vingast við þær.

Ég þekki stelpu, sem ég er búinn að þekkja í svolítinn tíma. Ég kynntist henni í gegnum skólann og vini mína. Ég hef aldrei reynt neitt við hana, en hef sýnt henni að ég vilji kynnast henni betur, þ.e. sýnt henni áhuga. Þegar ég meina að kynnast henni betur og sýna henni áhuga, meina ég ekki að reyna að sofa hjá henni. Ég er ekki þannig af guði gerður.

Ég var svolítið áhugasamur um að kynnast henni betur, en ég reyndi aldrei neitt við hana. Hefði ég verið að reyna við hana, væri ég örugglega búinn að reyna að kyssa hana, sem ég er ekki búinn að reyna. En allavega, hún heldur að ég hafi verið að reyna við sig.

Svo er önnur stelpa í skólanum mínum, sem þekkir hina stelpuna. Ég er ekki heldur neitt búinn að reyna við hana, en ég hef sýnt henni að ég vilji kynnast henni betur.

Þegar ég meina að kynnast henni betur, meina ég að tala við hana, hitta hana og verða vinur hennar eða eitthvað meira. Það kemur bara í ljós eftir að maður kynnist manneskjunni. Ekki satt? Eftir kynni kemur kannski samband, eða vinátta. En seinni stelpan heldur að ég sé bara að reyna við þær báðar í einu, sem er ekki rétt. Það sem verra er, er það að stelpurnar tala saman og fyrri stelpan sagði seinni stelpunni að ég hefði verið að reyna við sig, sem er heldur ekki rétt.

Sem sagt fyrri stelpan hafði ranghugmyndir um það að ég væri að reyna við sig, og smitaði seinni stelpuna með þeirri ranghugmynd að ég væri bara player sem væri að reyna við tvær í einu.

Mín pæling er sú að ef strákur sýnir stelpu áhuga, er hann þá að reyna við hana eða að reyna að fá hana í bólið? Hvað er að því að sýna stelpum áhuga? Þær stökkva alltaf á þá ákvörðun að maður sé að reyna við þær og reynandi að fá þær í bólið.

Nú heldur seinni stelpan að ég sé bara að reyna við hana út af því að fyrri stelpan vildi mig ekki. Vildi hún mig ekki? Gaf ég henni eitthvað færi á því að vilja mig? Nei.

Ég spurði seinni stelpuna hvort hún væri til í að kíkja heim til mín núna í kvöld. Það var ekki vegna þess að ég vildi ríða henni, heldur var það vegna þess að nokkrir vinir mínir voru saman komnir heima hjá mér og langaði mig bara að bjóða henni SEM VINUR. En ég fékk bara til baka: "Athugaðu FYRRI STELPUNA ég frétti að þú værir einmitt að smsast við hana, nema þú kallaðir hana elskan!".

Henni finnst eitthvað athugavert við það að ég hafi kallað fyrri stelpuna "elskan". Ég sendi einhverntíman fyrir löngu: "hæ elskan, hvað segiru?". Vó, back off mister. Ekki reyna svona mikið við hana! Ég kalla oft vinkonur mínar elskan. Maður segir þetta oft, en það þýðir samt ekki að maður sé að reyna eitthvað.

Svo sendi hún: "Smá ráð að ef þú ætlar að reyna við 2 stelpur í einu, hafðu það í huga að þær þekki ekki hvor aðra eða tali saman!" Takið eftir því, strákar, að það er greinilega bannað að tala við tvær stelpur í einu, sem þekkja hvor aðra, þar sem þú gætir verið að reyna við þær BÁÐAR. Svona hugsunarháttur pirrar mig.

Það má greinilega ekki vingast við tvær stelpur í einu, sem þekkja hvor aðra. Þær tala saman og hafa ranghugmyndir um að maður sé að reyna við þær báðar Í EINU.

Seinni stelpan var með mér í tíma í skólanum, og þekkti ég hana bara í gegnum þann tíma. Eitt sinn lánaði hún mér bókina til þess að afrita glósurnar úr henni, og bað ég um símanúmerið hjá henni til þess að geta hringt í hana, hitt hana og skilað bókinni. Hún hefur pottþétt tekið því þannig að þetta væri bara enn ein leiðin til þess að reyna við hana. Hah, þykjast þurfa bók og biðja um númerið í kjölfarið. PLAYER!

Svo hringdi ég í hana seinna og skilaði henni bókinni. Svo langaði mig að kynnast henni betur, þar sem það sem ég þekki af henni (í tímum), þá virðist hún vera skemmtileg manneskja. Ég sendi henni svo sms einhverntíman þegar ég var í partýi með félögum mínum. Vá, hættu að reyna svona mikið, Gaui!

Mér finnst þetta bara svolítið fyndið og asnalegt, og varð bara að skrifa smá um þetta.




Athugasemdir ():