Deila á Facebook
« Áhugi = hössl? | Aðalsíða | Partý - Fjórfaldur fögnuður! »

Fimmtudagurinn og föstudagurinn
Skrifað laugard. 20. maí 2006 - 02:24
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég vaknaði kl 12, fékk mér að borða, henti mér í sturtu og svona. Svo kom Jökull og fórum við saman að ná í einkunnirnar okkar. Því verr og miður gekk mér ekki eins vel og ég hélt. Ég náði einungis 10/17 einingum, enda var þetta skítaönn. Maður skilaði sjaldan verkefnum og lærði nánast aldrei heima. Ég er viss um að mér hafi gengið ágætlega á lokaprófunum, en það segir ekki nema hálfa söguna, því annareinkunn spilar mikið inn í. Það er það sem hefur dregið mig svona rosalega niður.

Það sem kom mér hins vegar mest á óvart, var það að ég féll í kór. Það er nefnilega varla hægt að falla í kór, en jú jú, mér tókst það. Svona er að þurfa að vinna þegar kórstjórinn ákveður að vera með asnalegar æfingar, sem eru ekki á skólatíma!

En nóg um það. Ég fór bara heim að gráta. Nei nei, segi svona. Ég fór svo bara að vinna um kvöldið með Andra. Við vorum eitthvað að flippa, fundum merkingarvél þarna og fórum að leika okkur að búa til miða.

Miði sem ég bjó til og setti á bílinn minn. It's true!


Það kom mér mjög á óvart hvað það var mikið að gera, á miðað við að undankeppnin í Eurovision var þetta kvöld. Helling af fólki sem kom á meðan Silvía var að syngja. Kom mér mjög á óvart. Svo fór ég bara heim.

Seinna um kvöldið komu Grétar, Jökull, Íris og Kelli. Ég og Grétar fengum okkur nokkra bjóra og spjölluðum við svo bara öll saman langt fram á nótt. Það var mjög fínt. Við ætluðum á Klúbbinn, en hættum við, út af ákveðinni manneskju. En takk fyrir kvöldið, elskurnar.

Svo byrjuðu græjurnar mínar á fullu í botni þegar klukkan sló 12 um hádegi í dag. Ég rumskaði ekki! Svo vaknaði ég sjálfur klukkan hálf 3. Fór aðeins í tölvuna, fékk mér að borða, henti mér í sturtu og fór svo að vinna. Ég var að vinna með Hildi og Sæma. Þetta var ágætt kvöld. Ekkert allt of mikið að gera, en samt nóg.

Ég þoli ekki þessa krakka sem eru alltaf þarna. Þeir hanga þarna endalaust og gera ekki neitt. Annað hvort þessir 14-18 ára unglingar sem hanga bara fyrir utan betlandi sígarettur. Svo hitt pakkið, þessir 8-13 ára krakkar sem eru suðandi í manni um að gefa þeim eitthvað. Algjörlega óþolandi. Ég er hættur við að eignast börn.

En í vinnunni teiknaði Sæmi mynd af mér. Hann var ekkert að vanda sig, en þetta er helvíti flott mynd rissuð af honum á 1-2 mínútum. Hann er fínn gaur og mjög flinkur að teikna.

Myndin sem Sæmi teiknaði af mér á 1-2 mínútum


En núna er ég bara heima, sötrandi bjór og að hamast við að klára verkefni handa Opex, sem er hýsingaraðilinn minn. Svo er ég að spá í að kíkja yfir til Jökuls. Það er víst eitthvað chill þar. Grétar, Kelli, Jökull, Hildur og Jónas (meistarinn) eru víst þar. Ætli maður verði ekki að kíkja. Svo er kannski bara málið að kíkja smá á rúntinn? Kíkja aðeins á miðbæjarstemmninguna.

En svo er feitt djamm á morgun, ekki satt?




Athugasemdir ():