Partý - Fjórfaldur fögnuður!
Skrifað laugard. 20. maí 2006 - 17:06Það er sveitt partý í kvöld. Það er verið að fagna próflokunum, sumrinu, eurovision og útskriftinni!
Ég er reyndar ekki að útskrifast, en það er samt helling af fólki að útskrifast núna og er að fara að halda upp á það í kvöld. Maður fagnar því auðvitað fyrir þeirra hönd.
En í dag vaknaði ég bara kl 1. Skellti mér í föt, sótti Grétar og við brunuðum upp í skóla. Við áttum nefnilega að syngja í útskriftinni. Ég átti reyndar ekki að gera það, en ég ákvað að gera það fyrir Kella. Gat ekki látið þá vera 2 í bassanum.
Eftir helgi ætla ég svo að fara til Óla Skóla og ræða við hann um þennan kór, og krefjast eininga fyrir hann. Þar sem samkvæmt Innunni er ég með 99% mætingu og ég mætti á útskriftina, þannig það er ekki hægt að fella mig! Ég mun fara með þetta lengra!
Núna er ég bara að fara í ríkið fyrir Svavar, félaga minn. Svo geri ég mig kláran fyrir kvöldið, sæki svo Gumma og Halla og við förum heim til mín að drekka. Svo horfum við á Eurovision, drekkum meira, fögnum Lordi og förum svo að lokum niður í bæ!
Vííí!
Hvað ætlið þið að gera í kvöld? 

Athugasemdir (