Deila á Facebook
« Partý - Fjórfaldur fögnuður! | Aðalsíða | Sunnudagurinn - Tekinn aftur! »

Laugardagurinn - Partý & Broadway
Skrifað sunnud. 21. maí 2006 - 17:49
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Gærkvöldið byrjaði frábærlega, en endaði ömurlega. Ég hélt smá Eurovision partý. Ekkert stórt, en það komu nokkrir.

Ég byrjaði bara að taka mig til. Svo komu Hildur og Kelli. Ég skrapp svo út í sjoppu að kaupa sígó og fór líka að sækja Helga, Gumma og Halla. Þeir voru heima hjá Gumma að drekka, og vantaði far. Svo þegar ég sótti þá, þá vildu þeir fara og fá sér að éta og stungu upp á Eika Feita, sem er nýr staður staðsettur lengst inni í Grafarvogi. Það var eitthvað tilboð, sem strákarnir voru svo æstir í. Fjórir hamborgarar, franskar og 2L kók á 1000 kr. Ekki amalegt tilboð það.

Við höfðum stillt á RÚV í útvarpinu í bílnum, þannig við gætum heyrt lögin í Eurovision á meðan við vorum ekki fyrir framan sjónvarpið. Svo byrjuðu Lordi að spila og gáfum við allt í botn, en náðum bara 5 sekúndum af laginu.

Svo þegar við komum heim, voru Íris, vinkona Írisar, Kasja, og Jökull mætt. Svo kláruðum við bara að horfa á Eurovision. Svo stuttu seinna kom Grétar hress og kátur. Ég vissi innst inni að annað hvort Finnland eða Litháen myndu vinna þetta, og var það rétt hjá mér. Finnland vann!

Svo eftir Eurovision fórum við bara fram í sólstofu og sungum og drukkum. Helgi eða Kelli spiluðu á gítarinn og allir hinir sungu með. Þetta var frábært.

Þegar það var liðið smá á kvöldið, þurfti Kasja að fara upp í Breiðholt að sækja lykla af 11-11, og Gummi þurfti að fara upp í Árbæ að sækja Broadway miðana. Ég, Gummi, Jökull, Íris og Kasja fórum í smá bíltúr.

Á leiðinni sáum við hóp af 8-9. bekkingum í Breiðholtinu. Ég bað Gumma um að koma með mér og fokka aðeins í þeim. Við þóttumst vera í 10. bekk, en það var ekki alveg að gera sig. Því næst reyndi ég að selja einhverjum stelpum miða á Broadway á 500 kall. Svo fórum við bara.

Við komum svo bara heim. En eins og í öllum partýum þarf alltaf að vera eitthvað vesen. Það var mikið hellt niður. Einhver tók 4 pizzabollur og setti inn í örbylgjuofninn. Einhver braut takka á eldavélinni. Einhver braut glös. Ég veit hver gerði alla þessa hluti, en ég ætla að sleppa því að setja nöfn aðilanna hér. Þeir hinir sömu geta bara tekið þetta til sín og skammast sín.

Svo loksins þegar ég náði að henda öllu fólkinu út, ákváðum við að kíkja á Broadway á eitthvað Nóatúnsball. Við áttum sirka 200 miða á þetta ball. En það var fullur bíll hjá Jökli, þannig ég hringdi í Sollu, vinkonu mína. Það var pláss fyrir einn þannig hún og Auður, vinkona hennar, komu og sóttu mig og skutluðu mér á Broadway.

Þegar ég kom á Broadway, kvaddi ég þær bara, og fór inn. Ég var með bjór, þannig ég mátti ekki fara inn. Ég kláraði bara bjórinn og fór svo inn. Djöfull var ég hress þarna, vel góður bara. Ég fór auðvitað strax á dansgólfið. Ég man að ég spurði Milljónamæringana, sem voru að spila, af hverju Páll Óskar væri ekki með þeim. Þeir svöruðu því að hann væri á Nasa að DJ'ast. Milljónamæringarnir eru ekkert án Palla!

Það var nú ekki mikið af fólki á Broadway. Flest allir sem voru á Broadway, voru á dansgólfinu. Ég fór bara eitthvað að dansa þarna. Ég man að ég tók Foxtrott þarna á dansgólfinu, en svo rann ég í einhverri bleytu sem var þarna, og Helgi kom hlaupandi til mín og hjálpaði mér upp, og spurði svo: "Hrinti þessi gaur þér???". Hahahah. Svo byrjuðum við bara á því sem við gerum á hverju djammi. Láta eins og fávitar og rekast utan í fólk "óvart". Hehe, við erum svo vitlausir.

Eftir Broadway, fórum við með Jökli niður í bæ. Við settum Jónas, sem er í úrslitunum í Meistaranum á stöð2, í skottið. Svo keyrðum við niður laugarveginn, segjandi öllum að við værum með meistarann í skottinu. Það trúði enginn okkur, en svo opnuðum við skottið og fólk bara gapti og fór að hlæja. Það var of fyndið!

Svo komum við bara niður í bæ. Fórum auðvitað beint á Sólon. Ég hitti helling af fólki á Sólon. Ég hitti Bjarka, sem býr ská á móti mér, Eygló, Kareni, Hildi, Hjalta, Rafn, ofl. fólk. Ég var á Sólon bara allt kvöldið. Það er svo skemmtilegt þegar fólk dregur mann á dansgólfið, dansar við mann í 5 sekúndur og fer svo og dansar við annan aðila, sem grætti manneskjuna áður. Það er alltaf gaman!

Ég dansaði bara að mestu leyti einn þarna. Svo kom Hildur og við dönsuðum smá saman. Ég hitti svo Helga, og hann sagði að þetta væri versta djamm sem hann hefði farið á. Ég var eiginlega sammála. Þetta var frekar dauft þarna á Sólon. Ég skil bara ekki af hverju við kíktum ekki eitthvað annað. Klukkan var reyndar orðin svolítið margt, þannig það var að fara að loka allstaðar.

Ég skrapp á klósettið og fór svo að dansa meira. Ég keypti mér svo bjór og settist niður og sötraði hann.

Svo lokaði á Sólon. Ég kvaddi Hildi, rölti niður á Lækjartorg og keypti mér kók að drekka. Rölti aðeins yfir á Gaukinn, til þess að sjá hvort ég myndi sjá Veru. Engin Vera.

Þá byrjaði ég bara að rölta heim, þar sem ég átti engan pening fyrir leigubíl. Ég reyndi að ná í Kamil, Sollu og Maju, en það voru allir farnir að sofa, þannig ég tók mig bara til og rölti heim. Ég byrjaði meðfram Sæbrautinni, en færði mig svo ofar, þar sem það var svo mikill vindur. Ég var í 2 tíma á leiðinni heim, blindfullur skröltandi heim. Ég man að ég samdi lag á leiðinni, en það var að mestu leyti um hvað Ísland væri ömurlegt land.

Svo kom ég heim, bullaði smá á ircinu, sem ég man ekki eftir, og rotaðist svo í rúminu mínu.

Núna var ég að vakna og er að fara að drífa mig í vinnuna. Ég er að vinna svolítið mikið núna. Ég er að vinna í kvöld, mánudag, þriðjudag, frí á miðvikudag, svo fer ég að vinna á fimmtudag og föstudag.

En núna á eftir þegar ég er búinn að vinna, fara svona 2-3 tímar í það að taka til hérna. Það er allt í dósum og drasli hérna!

Smá slúður:
  • Gummi og Eygló kysstust aftur
  • Grétar fór snemma heim vegna áfengisdauða
  • Stelpur leika mikið "hard to get"
  • Helgi hélt ekki með Lordi
  • Jónas fór ekki einn heim

Ég hendi svo myndunum inn í kvöld. Takk fyrir kvöldið. Segjum þetta gott í bili.




Athugasemdir ():