Sunnudagurinn - Tekinn aftur!
Skrifað mánud. 22. maí 2006 - 07:15Ég ætlaði að skrifa þetta í gær, en síðan mín datt því miður niður, þannig ég verð bara að setja þetta inn núna á mánudegi. 
En þetta var fínn dagur. Ég byrjaði á því að sofa geðveikt lengi, og vakna geðveikt seint. Svo fór ég smá í tölvuna, skellti mér í sturtu og fór svo að vinna. Ég var að vinna með Hildi. Svo kl 8, þegar Kidda átti að mæta, mætti hún ekki. Þegar það voru liðnar 20 min, ætlaði ég að senda henni sms um að hún þyrfti ekkert að mæta aftur, þar sem hún hefur áður beilað á vinnunni. Ég var bara kominn með nóg, en svo birtist Sæmi og ég sagði honum þetta, en þá var hann að vinna fyrir hana. Þannig ég hætti við þetta. Ég tel mig vera nógu bundinn þessu fyrirtæki til að ég geti tekið svona ákvarðanir, þar sem ég þoli ekki svona kærulaust starfsfólk, og vil að vinnustaðurinn minn sé laus við svona pakk.
En svo eftir vinnu, báðu Helgi og Gummi mig um að koma á Sólon á efri hæðina. Ég fór auðvitað á Sólon og ætlaði að fara að labba upp á efri hæðina, þegar barþjónninn á neðri hæðinni öskrar á mig: "Heyrðu félagi! Það er lokað uppi á efri hæðinni". Ég segi honum bara að ég sé að fara að hitta Gumma, þannig hann hætti við að skipta sér af.
Gummi og Helgi voru þarna uppi tveir að horfa á fótboltann og drekkandi bjór, blindfullir.
Það var gaman. Svo fór Gummi niður og sótti tvo bjóra handa sér og Helga. Ég spurði þá Gumma hvort ég mætti fá kók. Þá fór hann á bak við barinn og hellti kóki í glas handa mér, en það endaði illa, þar sem vaktstjórinn komst einhvernveginn að því að Gummi hefði verið að gefa mér kók. Ég skil samt ekki hvernig, þar sem Helgi passaði að enginn myndi koma, og það kom enginn. En það er víst komin ný tækni sem heitir myndavél. 
Við vorum ekkert lengi þarna. Spjölluðum aðeins saman og fórum svo bara fljótlega eftir það. Fórum út í bíl til mín og tókum svo einn laugarveg. Gummi þurfti svo að koma bílnum sínum heim, þar sem hann var að drekka og hann færi varla að keyra undir áhrifum. Það er ekki sniðugt, þannig við hringdum í Ívar og kom hann með Herdísi, sem var svo góð að keyra bílinn heim fyrir Gumma.
Á meðan við vorum að bíða eftir Ívari, sáum við lögguna á Hverfisgötunni. Löggan sá mig og tók U-beygju og beið eftir því að ég myndi keyra fram úr henni. Við vissum að hún væri að fara að stoppa mig, en töldum að hún gæti ekki stoppað mig fyrir neitt, nema bara í check. Svo eftir nokkrar mínútur, keyrði ég rólega af stað. Strax og ég er kominn fram úr löggunni, setur hún bláu ljósin á og keyrir á eftir mér og ætlar að stoppa mig.
Ég legg úti í kanti og bíð eftir lögregluþjóninum. Svo kemur hann og biður mig um ökuskírteini og Helgi spyr hann fyrir hvað hann sé að stoppa mig, og spyr hvort hann sé bara að taka mig í check. Hann segir að það sé ögn alvarlegra en það og biður mig um að koma inn í löggubílinn. Ég hlýði að sjálfsögðu og ég og strákarnir furðum okkur á því hvað ég hafi gert af mér.
Þegar ég kem inn í löggubílinn, sé ég að löggan heldur á skýrslu með kæru. Ég spyr hana fyrir hvað hún ætli að kæra mig, og þá segir hann að ég hafi verið með kastarana (þokuljósin) á. Ég spyr hann hvort hann ætli að kæra mig og sekta mig fyrir það. Hann segir já og heldur áfram að skrifa skýrsluna. Ég spyr hann hvort hann geti ekki bara gefið mér áminningu, þar sem ég hef aldrei áður verið stoppaður fyrir þetta og hafi ekki einu sinni vitað að þetta væri ólöglegt, en hann neitar því og segir að það tíðkist ekki. Ég held auðvitað áfram að þræta við hann, og segi honum að það sé dagljósabúnaður í bílnum, þannig þegar ég kveiki á bílnum, kveikni sjálfkrafa á kösturunum, þannig til þess að slökkva á kösturunum, þurfi ég að ýta á takka. Honum var alveg sama.
Ég spyr hann svo hvað það sé há sekt við þessu og hann hreytir út úr sér: "Það er ekki mitt að vita". Er það ekki þitt að vita?! Fábjáni! 
Ég man að hann sagði: "Hvernig bíll er þetta, er þetta Toyota?". TOYOTA?!?!
Ég hefði átt að segja það sem helgi sagði mér að segja: "Já, þetta er nýi Yarisinn"
Mig langaði svo að hlæja að greyið lögreglumanninum og öskra á hann: "TOYOTA? VEISTU EKKI NEITT?", en ég sleppti því. Ég hefði örugglega verið handtekinn aftur. 
Ég bið hann þá um að taka fram á skýrslunni að ég hefði viljað fá áminningu fyrst, og að ég væri með dagljósabúnað, þannig ég þyrfti sjálfur að slökkva á kösturunum, og gerði hann það. Svo rétti hann mér ökuskírteinið mitt aftur og ég opnaði bílinn, en það var barnalæsing, og þá segir hann mér að ég verði að kvitta. Ég segi bara við hann að ég ætli ekki að kvitta fyrir eitthvað sem ég væri ekki sammála. Hann byrjar þá bara með leiðindi og ætlaði varla að hleypa mér út fyrr en ég væri búinn að kvitta. Ég þverneitaði að kvitta, en á endanum var mér hleypt út.
Ég elska svona löggur.
Hann hefði alveg getað gefið mér áminningu, áður en farið væri út í það að sekta fyrir svona rugl. Ég byrjaði fyrst voða kurteis, en þegar löggan var ekkert að gefa sig og var bara með eintóm leiðindi og stæla, þá fauk svolítið í mig og var ég með leiðindi og stæla á móti. Þó ég hafi nú ekki móðgað lögguna neitt, þá hreytti ég svörunum út úr mér, en það var bara þeim að kenna. Þeir hefðu alveg getað verið kurteisir, þó að þetta hafi bara verið eldri löggan. Ungi lögreglumaðurinn tjáði sig voða lítið og var frekar þögull allan tímann.
"Ég er gömul þreytt lögga sem ætti löngu að vera kominn á ellilífeyrinn, og verð því að taka það út á saklausum ungum ökumönnum á flottum bílum"
Svona hugsar löggan greinilega.
Svo fór ég bara inn í bílinn minn og keyrði Gumma að bílnum sínum, og Helga heim. Svo fór ég bara sjálfur heim.
Svo núna áðan kom Jökull til mín, og áttum við helvíti gott spjall saman. Djöfull var gott að spjalla við hann. Spjölluðum í einhverja 2 klst, og var það helvíti gott.
Takk fyrir spjallið, Jökull.
Þetta bjargaði alveg kvöldinu. 
En já, núna er ég bara að fara að sofa, þar sem ég er að fara að vinna á morgun. Þarf að reyna að vakna svolítið snemma og byrja að taka til, þar sem ég er ekki byrjaður á því!
En allavega, myndirnar frá laugardagskvöldinu eru komnar inn og má skoða þær hér.
Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (