Ást í gegnum...sjónvarp?
Skrifað þriðjud. 23. maí 2006 - 02:17Svona til tilbreytingar, ákvað ég að hafa bloggið ekki allt of langt.
Um daginn horfði ég á myndina What a Girl Wants með Amöndu Bynes í aðalhlutverki. Mér persónulega fannst myndin voða sæt, og var hún ágætis skemmtun.
Eftir myndina var ég mjög hrifinn af Amöndu Bynes. Ég veit ekki alveg hvernig það er hægt, en bara hvernig hún var í myndinni, vakti einhverja hrifningu hjá mér. Ekki bara útlitslega séð, heldur bara hvernig persónan hennar var. Ég segi nú ekki að ég sé ástfanginn, enda er það varla hægt í gegnum sjónvarp á 2 klst.
Eftir að hafa horft á myndina langaði mig mjög mikið til Hollywood og kynnast henni betur, en því meira sem ég hugsa út í þetta, því ruglaðri finnst mér ég vera. Þar sem hún leikur bara stelpu sem heitir Daphne. Þannig í raun og veru er ég hrifinn af þessari Daphne, en ekki Amöndu Bynes. Þetta er algjörlega út í hött.
Þessi Daphne er ekkert til. Þetta er bara karakter í kvikmynd, sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Búin til af handritshöfundum og leikin af Amöndu Bynes.
Hvað er að mér?
Kannski ég ætti bara að taka geðlyfin mín, segja þetta gott í kvöld og fara að sofa?
En hafið þið lent í þessu? 

Um daginn horfði ég á myndina What a Girl Wants með Amöndu Bynes í aðalhlutverki. Mér persónulega fannst myndin voða sæt, og var hún ágætis skemmtun.
Eftir myndina var ég mjög hrifinn af Amöndu Bynes. Ég veit ekki alveg hvernig það er hægt, en bara hvernig hún var í myndinni, vakti einhverja hrifningu hjá mér. Ekki bara útlitslega séð, heldur bara hvernig persónan hennar var. Ég segi nú ekki að ég sé ástfanginn, enda er það varla hægt í gegnum sjónvarp á 2 klst.
Eftir að hafa horft á myndina langaði mig mjög mikið til Hollywood og kynnast henni betur, en því meira sem ég hugsa út í þetta, því ruglaðri finnst mér ég vera. Þar sem hún leikur bara stelpu sem heitir Daphne. Þannig í raun og veru er ég hrifinn af þessari Daphne, en ekki Amöndu Bynes. Þetta er algjörlega út í hött.
Hvað er að mér?

Mynd af tilvonandi eiginkonu minni. ![]()
Athugasemdir (

