"Þú ert töffari!"
Skrifað miðvikud. 24. maí 2006 - 01:06Ég hef voða lítið verið að pæla undanfarið, þannig hér er færsla með því sem á dag minn hefur drifið.
Ég vaknaði seint í dag, fór smá í tölvuna, skellti mér í sturtu og dreif mig svo í vinnuna. Stulli var að hætta með búðina, þannig núna tekur Valdís við. Hún er ágæt. Ég var að vinna með Hildi. Það ömurlega við þetta kvöld og eflaust öll önnur kvöld þarna í framtíðinni, er það að Stulli er hættur og hann er búinn að taka magnarann og alla hátalarana, sem hann átti, sem þýðir að nú get ég ekki lengur tengt iPodinn minn við magnarann og hlustað á hann í gegnum hátalarana. Nei nei, nú verðum við að setja geisladisk í DVD spilarann og hlusta á hann í gegnum sjónvarpið.
En eftir vinnuna fór ég bara heim og er hér niður kominn.
Á morgun er víst heljar djamm, þar sem strákarnir; Helgi, Gummi, Ívar, Grétar, Kelli ofl. ætla víst að taka á því á morgun, þar sem það er rauður dagur á fimmtudaginn. Uppstigningardagur eða eitthvað.
Þannig það verður partý heima hjá Kella og svo bara bærinn eftir það vonandi.
Ótrúlegt hvað maður er mikil bæjarrotta, þrátt fyrir að þurfa ábyggilega að labba heim af hverju einasta djammi héðan í frá, þar sem ég er alltaf lengst í bænum. Grétar, Jökull og þeir fara alltaf heim kl 3-4, en ég er alltaf til 7-8!
Ég ætla að vakna snemma á morgun, skella mér í ríkið og fara svo heim að taka til. Ég verð víst að skúra og þrífa af öllum borðunum hérna. Grétar var samt svo góður að koma hingað um daginn þegar ég var að vinna og taka allar dósirnar og vaska upp. Takk maður!
En núna áðan þegar ég loggaði mig inn á minnsirkus, þá brá mér svakalega. Ég hafði fengið eitt vinaboð og það frá engum öðrum en Ásgeiri Kolbeins!
Í vinaboðinu stóð: "Þú ert töffari... þess vegna vil ég gerast vinur þinn! kv. Ásgeir Kolbeins". Hehehe, magnað að Ásgeiri Kolbeins finnist ég vera töffari, og hefur þess vegna sent mér vinaboð um að vera vinur sinn á minnsirkus. Haha, þetta er eflaust eitthvað fjöldaskeyti sem hann sendir öllum, þar sem Ívar fékk víst líka svona. Kannski erum við Ívar bara svona töff?

En endilega skráið ykkur inn á minnsirkus. Þótt þetta sé drasl kerfi að mörgu leyti, þá er þetta góð hugmynd, þrátt fyrir að vera mjög illa útfærð.
Ég heiti gauiis inni á minnsirkus, þannig endilega skráið ykkur og addið mér! 
En núna er ég bara að fara að sofa bráðlega, þannig við segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (