Deila á Facebook
« Sjálfsvorkunn? | Aðalsíða | Stúdentaveisla, kosningar ofl. »

Uppstigningardagsdjamm
Skrifað fimmtud. 25. maí 2006 - 23:13
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Hvað gerir maður annað á Uppstigningardag en að djamma? Ég veit að Uppstigningardagur er í dag, en ekki í gær, en hefði Uppstigningardagur ekki verið í dag, hefði ekkert verið djamm í gær.

Á aðfaranótt miðvikudags bauð ég Jökli í smá chill. Við elduðum okkur pizzur, drukkum kók og horfðum á Batman Begins. Ég verð nú að segja að myndin er mjög góð, en mér finnst svolítið asnalegt að hafa fyrstu myndina síðast. Þetta væri miklu meira spennandi ef myndaröðin byrjaði á byrjuninni og svo áfram. En þetta var fínt. Takk fyrir kvöldið, Jökull.

Ég byrjaði að taka mig til, fór í sturtu og dressaði mig í djammgallann. Í stað þess að fara í leðurjakka, fór ég í jakkafatajakkanum mínum. Ég fékk meira "gasalega ertu fínn" frá fólki en áður, þannig ég giska á að þetta hafi verið góð breyting.

Mikil breyting?


Ég fór heim til Jökuls í smá partý sem hann var með. Þar voru: Grétar, Jökull, Helgi, Gummi, Kelli, Hildur og Anna María, vinkona Hildar. Strax og ég kom inn var ég dreginn inn í leikinn "ég hef aldrei". Hehe, það var skemmtilegt. Ég komst að mörgum hlutum sem fólk hafði gert, sem kom mér svolítið á óvart.

En svo var fólk orðið fullt og dramaið byrjaði, eins og gengur og gerist. Ég ætla nú ekki að fara nánar út í það, en það endaði með því að Hildur, Anna og Kelli fóru, og var Grétar rekinn heim, vegna ofölvunar og leiðinda.

Við létum það ekki á okkur fá og héldum bara áfram að hafa gaman. Seinna um kvöldið var Jökull orðinn svolítið slappur, þannig við ákváðum að færa okkur bara yfir til mín, þar sem mamma og pabbi voru ekki komin heim. Við drukkum og sungum hástöfum við ljúfan gítarhljóminn hjá Helga. Það var mjög gaman. Seinna kom Jökull og bauðst til að skutla okkur niður í bæ. Takk, Jökull.

Jökull skutlaði okkur strákunum niður í bæ og byrjuðum við á Glaumbar. Það var algjörlega dautt þar inni, löbbuðum einn hring, tókum smá dans og fórum svo bara. Við röltum yfir á Gaukinn. Tókum smá dans þar. Það var einhver stelpa sem kannaðist geðveikt mikið við mig. Helena held ég að hún heiti. Svo kom einhver gaur og fór að reyna við hana, en hún vildi ekki dansa við hann en hann lét ekki slag standa og dansaði hana út í horn. Ég skipti mér þá að því. Ég gerði í rauninni ekkert nema að segja gaurnum að hún vildi ekki dansa við hann. Þá byrjaði hann með eitthvað svaka bögg og sagði við mig: "Við erum 30 hérna inni". Mér fannst það frekar fyndið, þar sem það voru ekki einu sinni 30 manns samtals þarna inni. En svo kom Adam og stoppaði þetta bull, áður en það byrjaði.

Við strákarnir fórum þá yfir á Sólon. Þar var sko stuðið! Staðurinn var troðfullur og átti maður erfitt með að labba um. Við dönsuðum og drukkum meira áfengi. Það var Gumma að þakka að maður varð ekki edrú þarna. Svo seinna um kvöldið fór Helgi heim, þar sem hann var að fara að vinna kl 8 um morguninn.

Ég og Gummi vorum bara eftir. Settumst niður, fengum okkur bjór og slöppuðum af. Gummi byrjaði þá að tala við einhverja litaða stelpu, sem talaði bara ensku. Nafnið hennar var svo flókið að ég bara get ekki munað hvað það var! Ég fór þá til tveggja sætra stelpna sem voru þarna bláedrú á djamminu. Er það hægt? Þær hétu Rannveig og Erla. Fínar stelpur.

Svo pantaði Gummi skot handa okkur, og fór ég og tók það, og settist svo aftur hjá Rannveigu og Erlu. Svo fórum við að dansa. Ég var orðinn frekar ölvaður, þannig ég gat varla dansað, en það tókst... held ég. Svo var einhver ógeðslegur gaur að reyna við Erlu, þannig Rannveig sagði við mig: "Nenniru að bjarga henni?". Auðvitað gerði ég það. Ég tók þá utan um þær báðar og dansaði, þannig gaurinn myndi fara, og getið hvað... það virkaði!

Svo seinna um kvöldið ákváðu Rannveig og Erla að fara, þannig ég fór að leita að Gumma. Hann var á dansgólfinu að dansa við stelpu sem allir ættu að kannast við. Ég var orðinn of drukkinn, þannig ég sagði Gummi að ég væri að fara. Hann bauðst til þess að koma með mér, en ég afþakkaði það, þar sem hann átti von á góðu. Svo fór ég bara út, kvaddi Matta og hélt mína leið út á götu.

Ég hringdi í Ívar og spurði hann hvar hann væri, og sagðist hann vera á Hverfis. Ég fór þangað, þurfti ekki að bíða í neinni röð. Það er gott að vera frægur. Svo fór ég inn og hitti Ívar. Við vorum nú ekki lengi þarna, þannig við ákváðum bara að fara eftir smá dans. Ég hitti Ísak, sem var með mér í samkvæmisdansi. Kallinn er búinn að stíga einu skrefi lengra og farinn að kenna samkvæmisdans. Það er naumast! Ég spurði hann hvort hann kannaðist við mig og hann sagði: "Já, þú ert gaurinn sem var geðveikt mikið babyface!". Það er rétt.

Ég, Ívar og Margrét, vinkona Ívars, röltum niður laugarveginn, og stuttu seinna kom Ella, systir mín, að sækja okkur. Fyrst var ég alveg: "Það er einhver stelpa á bíl alveg eins og ég á!", en svo áttaði ég mig. Hehehe. Við settumst inn, skruppum á Hlöllabáta, og fengum okkur að borða. Margrét pantaði 4 bacon báta, þrátt fyrir að ég hafi beðið hana um að panta Netabát fyrir mig, og svo vildi Ívar ekki bát, en hún var full og vitlaus.

Ég fór þá fremst í röðina og bað stelpuna á Hlöllabátum um að gera nýjan bát. Hún var frekar treg til þess, en gerði það að lokum. Það var einhver snælduvitlaus stelpa hliðiná mér í röðinni, sem var á túr og öskraði á mig um að fara aftast í röðina, þar sem ég var að ryðjast. Ég sagði henni að ég hefði verið í röðinni og benti henni á bátinn minn og spurði: "HVER ER MEÐ BÁTINN HÉRNA?". Þá varð hún alveg kjaftstopp, en fór svo að væla meira. Að lokum, þegar ég var búinn að fá Netabát, settist ég inn í bílinn hjá Ellu, systir minni, og öskraði á stelpuna. Hahah, rugl.

Svo hringdi Lóa í Ívar og bað hann um að sækja sig, þannig við fórum á Hlemm og þangað kom hún. Hún var með einhverjum gaur, sem ætlaði að fara að troða sér inn með henni. Ég sagði bara við hann: "Djöfull ertu bjartsýnn að reyna að troða okkur 6 inn í 4ra manna bíl". Þetta er sko 4ra manna bíll, en við vorum 5 með Lóu, þannig gaurinn fór að lokum. Gaurinn var sko allt annað en sáttur.

Svo skutluðum við Margréti heim, svo Lóu og svo Ívari. Að lokum fórum við systkinin svo heim. Bíllinn var orðinn frekar tæpur á bensíni, en við náðum heim sem betur fer.

Takk fyrir kvöldið, Helgi, Gummi og Ívar.

Svo vaknaði ég grútþunnur í kvöld. Danni, Kamil og Kristín komu til mín og fóru fram á að ég myndi rífa græjurnar hans Kamils úr bílnum mínum. Ég sagði þeim að ég myndi gera það á morgun. Svo fórum við bara á smá rúnt upp í 10-11 og ég fékk mér kók, og svo skutlaði Danni mér bara heim.

Núna veit ég ekki hvað ég geri, en það verður líklegast fátt. Strákarnir buðu mér í bíó áðan, en ég á engan pening, þannig ég varð að neita. Ég hefði nú alveg verið til í að fara, en svona er að vera eyðsluseggur og þurfa að eyða öllum peningunum sínum í áfengi og bensín. Helvítis bensínverð! En það er efni í aðra færslu.

Segjum þetta ágætt í bili.

Myndirnar frá gærkvöldinu eru hér.




Athugasemdir ():