Dagurinn í dag
Skrifað fimmtud. 10. nóvember 2005 - 01:24Þetta var leiðinlegur dagur. Ég mætti kl 11:20 í skólann. Fór fyrst kl 8 með bílinn í hjólastillingu, fór svo aftur heim að sofa.
Vaknaði svo kl 11 og fór í skólann. Eftir skólann fór ég heim að sofa. Já, svona er að safna upp þreytu og deyja svo bara einn daginn úr þreytu. Vaknaði svo kl 6, fékk mér kjúkling að borða og fór svo að gera mig kláran fyrir leikhúsið.
Klukkan 7:30, legg ég af stað í leikhúsið. Sæki Elvar félaga minn og við brunum í leikhúsið.
Leikritið var frekar lélegt. Það komu nokkrir brandarar svona inn á milli en söguþráðurinn og plottið í leikritinu var bara ömurlegt. Ég get t.d. ekki sagt um hvað það fjallar, nema það að það fjallar um einhverja sjómenn sem eru úti á sjó á bát sem fiskar ekki neitt. Svo fara þeir í land og þá kemur einhver kona og í bátinn og svo bara endar það. Frekar ömurlegt. En leikararnir stóðu sig vel og voru góðir og lék þar á meðal Ingvar Eggert Sigurðsson (Englar Alheimsins).
Eftir leikritið fór ég bara heim og náði í spólu sem ég ætlaði að skila. Á leiðinni upp í Bónus Video, kemur einhver töffari á dökkblárri Subaru Imprezu GT með bílnúmerið TN-328 og tekur fram úr mér og flautar eins og brjálæðingur á meðan hann er að taka fram úr mér. Djöfull brá mér mikið. Var bara eitthvað dauðþreyttur að keyra. Ef þið sjáið þennan bíl megið þið alveg flauta á hann.
Ljóshærður strákur sem heitir Biggi eða eitthvað. Þekki hann samt ekkert. Fékk þessar upplýsingar bara annarstaðar. Ég allavega skila spólunni og nú er ég hér.
Núna um helgina er áætlað djamm. Fríhelgi og svona og maður verður víst að djamma þá.
Mér var boðið á eitthvað Önfirðingaball á laugardeginum sem ég ætla að fara á og drekka mikið af fríum bjór, fara svo haugafullur niður í bæ! Taka eitt stórt jamm á þetta!
En já, afmælisplaneríið hjá mér og Grétari er allt að koma. Við erum byrjaðir að plana og svei mér þá ef við erum ekki bara að verða búnir. Við erum búnir að sjóða saman boðslista sem við munum opinbera síðar. Þetta stefnir allt í rétta átt.
Ég er allavega way past bedtime og ætla ég að fara að sofa núna. Skóli á morgun frá 8-6 og svo beint að vinna og svo bara frí frí frí.
Jamm, stefnir á góða helgi.
Eitt að lokum. Það komu 105 gestir á síðuna mína núna 9. nóv. Ég er mjög ánægður með það.
Komu nokkrir frá skondnum síðum, eins og...
http://www.google.com/search?hl=en&lr=&q=gaui+litli+kj%C3%B6r%C3%BEyngd&btnG=Search
Líka:
http://www.leit.is/query.aspx?qt=smile&cp=2&qo=leit
Bara fyndið.
Heyrumst, elskurnar...

Athugasemdir (