Deila á Facebook
« Uppstigningardagsdjamm | Aðalsíða | Ýmislegt á prjónunum »

Stúdentaveisla, kosningar ofl.
Skrifað laugard. 27. maí 2006 - 20:52
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, er ekki kominn tími á smá blogg?

Í gær fór ég í stúdentaveislu til frænku minnar, Ellu. Til hamingju, elskan. Ég var að vinna til 12 og kíkti eftir það. Það var mjög fínt. Svo ætlaði ég heim í sturtu og gera mig fínan, þá hitti ég Grétar og Jónas, meistarann. Þeir voru þarna fyrir utan. Ég óskaði Jónasi til hamingju með sigurinn og svo fórum við Grétar heim til mín.

Ég fór í sturtu og gerði mig fínan, og svo fórum við aftur í stúdentaveisluna. Svo seinna um kvöldið kom Danni og kíkti og við fórum svo í Nauthólsvíkina, þar sem Sigrún og vinkonur hennar voru með stúdentapartý. Strax og við komum var verið að reka fólk út, þannig við stoppuðum stutt.

Seinna komu Kamil og Anna Björt, og Anna kom með okkur, en Kamil fór bara. Ég, Danni, Anna og Grétar fórum bara niður í bæ. Við byrjuðum á Pravda. Hlynur, félagi okkar, var að vinna þar í dyrunum, þannig hann hleypti okkur frítt inn.

Við stoppuðum stutt þar, en það var fín músík þar. Drumb and bass í botn, yeah! Svo fórum við bara á Gaukinn. Við hittum Ingvar þar, og kom hann með okkur á Glaumbar.

Þegar á Glaumbar var komið, fórum við beint á dansgólfið. Það var einhver gaur dansandi utan í mér, þannig ég snéri mér við og bað hann um að hætta því. Þá kom hann alveg upp að mér, kýldi smá í magann á mér og spurði: "Ætlaru að vera með eitthvað bögg?". Grétar kom þá og tók þéttingsfast í hann, dró hann smá frá og spjallaði við hann. Eftir það varð ekkert vesen.

Næst fórum við á Sólon. Strax og ég kom inn, hitti ég Eygló. Ég heilsaði henni og pantaði bjór hjá henni. Takk, Eygló mín, fyrir bjórinn. Svo fórum við bara upp, hittum Gumma á barnum og spjölluðum við hann. Hann var óvenju hress á barnum. Svo kom Ívar kallinn. Við fórum aðeins á dansgólfið og dönsuðum úr okkur allt vit. Eftir dansinn, ákváðum við að fara. Við spjölluðum við Gumma og hann bauð okkur far heim. Hann sagðist ætla að hitta okkur á Gauknum þegar hann væri búinn að vinna.

Við röltum á Hlölla og hittum Áka og Júlíu. Ég hélt að Áki væri hættur, en hann var allavega að vinna þarna. Gaman að hitta þig, kall. Grétar og ég fengum okkur bát og fórum svo á Gaukinn.

Þegar við komum á Gaukinn, settumst við Ívar bara og slöppuðum af. Grétar og Ingvar voru á fullu á dansgólfinu. Seinna kom Gummi og settist hjá okkur. Svo fórum við á dansgólfið og sóttum Ingvar og Grétar. Svo fórum við bara heim. Takk fyrir farið, Gummi minn!

Þegar við komum heim, kíktum við aðeins til Jökuls. Hann var aðeins að koma til eftir veikindin og slappleikann. Við spjölluðum aðeins við kallinn og svo fórum við Grétar bara heim.

Núna áðan vaknaði ég grútmyglaður. Frekar þunnur og svona, en það stoppar mig ekki. Maður er byrjaður að venjast þessari blessuðu þynnku. En í kvöld er víst stúdentaveisla hjá Ómari, og svo er kosningavaka í kvöld. Maður kíkir auðvitað til Ómars og fer svo bara niður í bæ.

Það er góð spurning hvort ég kjósi núna á eftir. Ég er eiginlega ekki að nenna því, þar sem ég er ekki mikill pólitíkus, og hef voða litla skoðun á þessum flokkum. Ætli ég kjósi ekki bara það sama og mamma og pabbi, þ.e.a.s. xD eða Sjálfstæðisflokkinn.

Ég hef voða litla skoðun á flokknum sjálfum, en mér líst helvíti vel á Vilhjálm og Gísla. Einnig líst mér ágætlega á stefnuskrána hjá þeim. Ef þeir finna betri stað fyrir flugvöllinn okkar á höfuðborgarsvæðinu, ætla þeir að færa hann, en ef ekkert annað svæði er betra, ætla þeir að halda honum, sem er ágætt. Mér finnst hann plumma sig ágætlega þarna í Vatnsmýrinni.

Einnig ætla þeir að bæta samgöngur, þ.e. að láta Sundabrautina alla leið upp í Kjalarnes. Mér finnst það alls ekki slæm breyting. Einnig stefna þeir á að setja mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Það er heldur ekki slæm breyting, og hefur mér fundist það vanta mjög mikið. Miklabrautin einnig lögð í stokk þar sem byggðin er næst. Er það ekki bara fínt? Minni umferðarhávaði. Ég tel það ekkert nema gott.

Einnig ætla þau að reisa ný byggingarsvæði á Geldinganesinu, Vatnsmýrinni, Örfirisey, Úlfarsfelli, Elliðaárvogi, Keldnalandi og Kjalarnesi.

Ég tel það ekkert nema gott. Einnig er best, þar sem xD er með forystu í borgarstjórn, að þau fái meiri hlutann í borgarstjórn, í stað þess að deila því með einhverjum öðrum flokkum, sem kemur þá út með því að einn flokkurinn vilji breytingar, en hinn ekki, og velti því allt á málamiðlunum, og þá kemst minna af hlutum í framkvæmd.

Ég kýs xD! - en þið?




Athugasemdir ():