Ýmislegt á prjónunum
Skrifað mánud. 29. maí 2006 - 17:15Hehe, skemmtilegt orðatiltæki. En ég ákvað að henda inn smá bloggi fyrir restina af helginni.
Á laugardaginn fór ég í stúdentaveislu til Ómars. Kallinn var að útskrifast úr Borgarholtsskóla, og ákvað ég að leyfa honum að njóta selskapar míns og mætti í veisluna hans. Hehe, segi svona.
Grétar keypti glas/vasa handa honum, sem við gáfum honum saman.
Veislan hjá Ómari var mjög fín. Nóg af bjór og lostafullum kræsingum.
Eftir það var bara farið í bæinn. Það eina sem kom til greina í bænum var Sólon og Gaukurinn. Þegar ég nefndi Glaumbar, þá urðu allir voða hneykslaðir á mér, þannig maður tók bara út djammið á þessum tveim stöðum. Þó aðallega Sólon. 
Ég drakk ágætlega mikið og endaði mjög hress niðri í bæ. Ég hitti Gumma á barnum á Sólon. Einnig hitti ég auðvitað Dóru. Hehe, skondið að hitta hana þarna.
En aðal ástæðan af hverju ég gat ekki dansað mikið, var vegna þess að heima hjá Ómari var ég eitthvað að hlaupa og rakst með tána utan í eitthvað, og tognaði þar af leiðandi í tánni og var ég haltur allt kvöldið. En hún er öll að koma til, held ég. 
Svo eftir djammið, fórum við drengirnir bara á Hlölla og svo heim. Takk æðislega fyrir bátinn, Áki.
og takk æðislega fyrir kvöldið, strákar, og þúsund þakkir fyrir farið, Jökull. 
Svo núna í gær var ég bara að drepast úr þynnku. Gerði ekki margt fyrr en eftir kvöldmat. Þá fórum við Jökull út í BV, fengum okkur spólu, kók og popp. Mmm.. kók!
Í þetta skiptið tókum við myndina Waiting, með Ryan Reynolds í aðalhlutverki. Það er ekki lítið hvað ég dýrka þennan leikara. Einn af þeim bestu! 
Myndin var mjög góð. Kom okkur mikið á óvart. Það var nú ekki við miklu að búast, en hún var alveg að gera það hjá okkur. Ég fór að spá aðeins í þessu eftir myndina; "Don't fuck with people that serve you food!". Þetta er alveg rétt. Maður þorir ekkert að setja út á manneskjuna og vinnuhætti hjá fólki sem sér um að búa til matinn manns, þar sem maður gæti lent í því að enda með hrákukássu, í stað matar, eins og í myndinni.
En svo eftir það horfði ég á Jackass: The Movie. Hún er náttúrulega alltaf jafn fyndin og steikt.
Já, það var sko bíókvöld þetta kvöld, þar sem eftir Jackass, horfði ég á Life as a House, með snilldar leikaranum Kevin Kline í aðalhlutverki. Þetta er snilldar mynd sem snart mig djúpt.
Hún fjallar um mann að nafni George (Kevin Kline), sem vinnur sem arkitekt. Seinna er hann rekinn, þar sem hann vill ekki aðlagast að þessari tölvumenningu, og verður þar af leiðandi rekinn fyrir að nota úrelda tækni. Eftir uppsögnina langar honum að rífa hús, sem pabbi hans byggði þegar hann var lítill. Hann rífur það og byggir nýtt hús með syni sínum, Sam, sem er þunglyndur manson- og dópisti. Seinna greinist George með krabbamein og þá kemur í ljós hvort sonur hans, Sam, klári húsið. Þetta er voða sæt mynd. Ef þið eruð fyrir sætar myndir, sem enda kannski með tárum, þá er þessi hiklaust fyrir ykkur.
En eftir það fór ég bara að sofa. Var búinn að vakna nógu lengi fyrir, þannig það var ágætt að fá smá svefn í haus. Svo áðan vaknaði ég, fór beint að vinna í Topp5, skrapp svo í Kringluna með Jökli, þar sem hann þurfti að fara með úrið sitt í viðgerð. Við fórum svo smá á kaffihús, fengum okkur sígó, kaffi og kók. Spjölluðum smá saman. Svo skutlaði Jökull mér bara heim og síðan þá hef ég bara verið að forrita.
Ég hringdi upp í Sumarferðir áðan og athugaði með ferðina út til Tenerife, sem verður 9. ágúst nk. Ég hringdi tvisvar. Fyrst til að athuga hvort Gugga væri búin að afpanta. Konan sagði að hún væri ennþá skráð í ferðina en hún ætti eftir að borga restina af fargjaldinu. Seinna símtalið var til þess að komast að því hvort ég þyrfti að gjalda fyrir það, ef Gugga myndi ekki fara og sleppa því að borga restina. Þá sagði kerlingin að ef Gugga borgaði ekki restina, yrði ég að borga það, sem sagt 26.990 kr, takk fyrir.
En ég og Jökull komumst að því að við getum horft á þetta út frá öðru sjónarmiði, þ.e. að ég borgi þetta gjald og þá sleppi ég algjörlega við að fá hana með út. Mér líst ágætlega á það sjónarmið.
En mig langaði að láta ykkur vita að ég er orðinn stjórnandi á Rómantík áhugamálinu á Huga, þannig gjafir og blóm eru vel þegin.
Ég er greinilega búinn að standa mig svona vel á þessu áhugamáli, að ég hef átt skilið stjórnandastöðu. 
En núna ætla ég að halda áfram að vinna. Sé ykkur, elskurnar.

Athugasemdir (