Fyrsti vinnudagurinn búinn!
Skrifað fimmtud. 1. júní 2006 - 16:27Jæja, hvaða dagur haldiði að sé í dag? 
Auðvitað er það útborgunardagur!
Kominn tími til að borga reikninga ofl. skemmtilegt. Alltaf þegar maður fær útborgað, þá tímir maður varla að borga reikningana, út af því að þá á maður minni pening.
Þetta er allavega svona með mig. En það er alltaf nóg til að borga. Ætli maður endi ekki bara með að eiga 15.000 kall eftir eins og alltaf, eftir að maður er búinn að borga alla reikninga. 
En nóg um það! Í dag var fyrsti vinnudagurinn í Vinnuskólanum. Helvíti fínn bara. Ég byrjaði á því að sækja Eygló í morgun og brunuðum við upp í Iðnskólann í Reykjavík, þar sem rúta beið eftir okkur. Hún fór svo með okkur upp í Ingunnarskóla í Grafarholti. Þaðan löbbuðum við upp í Heiðmörk.
Spáið í dugnaðinum. Eftir labbið fórum við í eitthvað hús í Heiðmörk þar sem hlaðborð beið okkar. Alveg yndislegt hlaðborð, slátur ofl. 
Svo slöppuðum við bara af þar. Ég, Jökull og Horhei (kólumbískur drengur) stálumst alltaf afsíðis til að fá okkur sígó.
Hehe, það var fyndið. Svo að lokum kom rúta og sótti Jökul og Eygló og fóru þau í einhverja kynningarferð í Sorpu, þar sem þau sjá um 14 ára krakka. Ég, sem sé um 15 ára krakka, var eftir í kynningarferð í Heiðmörk og hinir, sem sjá um 16 ára krakka, fóru að hjóla til baka í Iðnskólann.
Svo núna kl 6 er ég að fara að vinna í Bónus Video. Ég er svo dauðþreyttur eftir daginn að ég gæti sofnað. Ég fór líka allt of seint að sofa. Það er ekki gott að snúa sólahringnum við rétt fyrir vinnuna.
En segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (