Djöfulsins andskotans helvíti!
Skrifað föstud. 2. júní 2006 - 14:12Já, núna hef ég rétt á því að blóta, þar sem þetta var frekar ömurlegur dagur. Ég vaknaði ógeðslegur. Var að drepast í hálsinum, þannig ég drakk C-vítamín og tók hóstasaft, fór smá í tölvuna, brunaði svo í vinnuna. Á leiðinni keypti ég 10x hálsbrjóstsykra. Stykkið af þeim kostaði 11 kr.
Af hverju ekki bara 10 kr. ?! 
Þegar ég var kominn í vinnuna, fór ég upp á 4. hæð í fyrirlestur. Ég var svolítið seinn, þar sem gaurinn sagði mér að hitta sig í anddyrinu, þannig ég beið smá stund þar. En ég mætti þó.
Svo eftir þennan fyrirlestur um hvernig ætti að gróðursetja plöntur, þá var farið í rútuferð um svæðin.
Við byrjuðum á því að keyra á öll svæðin og skoðuðum okkur um. Það var alveg gaman, þar sem við þurftum ekkert að fara út úr rútunni. Og á leiðinni, var auðvitað sofið.
Svo komum við á einhvern stað, þar sem við fórum út úr rútunni. Yfirmaðurinn tók helling af skóflum og fötum úr rútunni og lagði á jörðina. Einnig tók hann Furu og Birki, til þess að gróðursetja. Það gekk bara vel að gróðursetja, þar sem maður er nú enginn nýgræðingur í þessu. Það versta var hins vegar að ég var ekki með neina hanska, nema fínu leðurhanskana mína, sem ég ætlaði sko ekki að nota. Þannig ég var allur út í hrossaskít á puttunum og angaði lyktin svoleiðis af þeim.
Svo var komið að matnum. Það var tekið upp samlokur, sem voru afgangs frá því í gær, og hlandvolga svala og kókómjólk. Það var ekkert helvítis vatn þarna, þannig ég gat ekki þvegið mér. Þannig það endaði með því að ég þurfti að borða samlokuna með skítugum höndunum, sem voru allar út í hrossaskít, og angaði lyktin svoleiðis af þeim. Viðbjóður!
Svo þegar allir voru búnir að gróðursetja eina Furu og eitt Birki, þá fengum við að fara. Við keyrðum svo bara aftur upp í Iðnskólann, þar sem bíllinn minn var. Svo fór ég bara heim.
En ástæðan af hverju ég er svona ógeðslega pirraður, er út af því að ég er orðinn lasinn aftur. Ég er með ógeðslegustu hálsbólgu sem um getur, og bara allur hálf slappur. Þetta er alltaf svona þegar eitthvað er að gerast!
Eins og t.d. núna um helgina ætlaði ég í sumarbústað með Helga, Gumma, Grétari og Jökli, en það bendir allt til þess að ég verð bara veikur heima!
Ég sem var búinn að redda mér fríi og allt frá vinnunni. Djöfulsins andskotans helvíti!

Svo eru Bíladagarnir á Akureyri eftir nokkra daga, og þá er ég auðvitað að vinna. Einnig er ég að vinna þegar Þjóðhátíð í Eyjum er. Annað hvort er ég að vinna eða ég er veikur!
Þetta er ömurlegt!!!

Athugasemdir (