Deila á Facebook
« Djöfulsins andskotans helvíti! | Aðalsíða | 06.06.06 »

Draumur, veikindi ofl.
Skrifað mánud. 5. júní 2006 - 17:23
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Vá, það eru heilir 3 dagar síðan ég bloggaði síðast! Þetta er alls ekki nógu gott! En ég hef hins vegar góða og gilda afsökun, og hún er sú að ég er búinn að vera lasarus, eins og Anna Sigga orðaði það svo snilldarlega.

En núna sl. daga er ég bara búinn að hanga uppi í rúmi, horfandi á video og í tölvunni. Ekkert gaman. En ég kíkti á rúntinn í gær. Eða rúntinn og ekki rúntinn. Fór bara á BSÍ og fékk mér fröller og kók og tók einn laugarveg í leiðinni. Bíllinn minn er græjulaus, út af því að Danni fékk græjurnar sem Kamil lánaði mér, þannig það var mjög hljóðlátt á rúntinum hjá mér. En það gaf mér þó tíma til að rabba aðeins við sjálfan mig.

En ég fór aðeins að spá í þessu með BSÍ sjoppuna, sem er opin alla daga og öll kvöld ársins. Það halda allir að hún heiti bara BSÍ, en í raun heitir hún Fljótt og Gott. Svo spyr maður fólk hvað sjoppan heiti, en það segir alltaf bara BSÍ. Fólk veit bara ekki betur.

En núna í nótt dreymdi mig svakalega steiktan draum. Ég er nú ekki vanur að dreyma eitthvað, en þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem mig dreymir eitthvað, og í þetta skiptið var það mjög steikt! Mig dreymdi að ég hefði verið að irca í gegnum þvottavél. Hversu steikt er það?!?!

En allavega, á morgun byrjar svo fræðsla í Iðnskólanum á vegum Vinnuskólans. Það þýðir að við mætum kl 8 og verðum í allskyns fræðslu alveg til 4. Ég er búinn að fara í þetta tvisvar áður og var þetta bara helvíti fínt. Svo er ókeypis matur þarna í hádeginu og svona, þannig maður verður ekki orkulaus. Þetta er bara spennandi.

En núna ætla ég að skella mér í sturtu og svona fyrir matinn. Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():